Innlent

Sementsryk dreifðist yfir bíla og hús á Akranesi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Líkt og sjá má á bárujárnsþakinu er grá slikja yfir því. Slökkviliðið vinnur nú að hreinsunarstörfum.
Líkt og sjá má á bárujárnsþakinu er grá slikja yfir því. Slökkviliðið vinnur nú að hreinsunarstörfum. Aðsend

Sementsryk úr sementstönkum Sementsverksmiðjunnar á Akranesi dreifðist yfir nærliggjandi svæði eftir að síló yfirfylltist þegar verið var að fylla á það.

RÚV greindi fyrst frá en í samtali við Vísi segir Jens Heiðar Ragnarsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins Akraness og Hvalfjarðarsveitar að hreinsunarvinna sé nú í fullum gangi.

Líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum dreifðist sementsrykið yfir hús og bíla en Jens Heiðar segir að dreifingin hafi að mestu verið staðbundin við Mánabraut, þar sem síló Sementsverksmiðjunnar eru staðsett.

Sementsrykið lagðist á nærliggjandi bíla.Aðsend

Á vef Skessuhorns er haft eftir Gunnari Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Sementsverksmiðjunnar að um mannleg mistök hafi verið að ræða. Umrædd síló hafi yfirfyllst þegar verið var að fylla á það með þeim afleiðingum að sementsryk dældist upp úr síló-inu og yfir umrætt svæði.

Þessi bíleigandi reyndi hvað hann gat til að hreinsa bílinn með háþrýstiþvotti í morgun en tókst ekki að ná öllu sementinu af honum.Aðsend

Jens Heiðar segir að reiknað sé með að hreinsunarstarf standi yfir fram eftir degi en slökkvilið hefur meðal annars stíflað niðurföll svo rykið berist ekki ofan í fráveitukerfið, að beiðni Veitna. 

Hann segir þó að Umhverfisstofnun telji að ekki sé um svo mikið magn að ræða að það teljist skaðlegt umhverfinu.

Niðurföll hafa verið stífluð að beiðni Veitna svo sementið berist ekki ofan í fráveitukerfið.Aðsend

Rykið er spúlað af bílum og þökum með vatni og safnað saman í hauga en Jens segir að beðið sé eftir bílum frá Reykjavík sem muni sjúga upp haugana sem safnað hefur verið saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×