Fjögur ráðin á skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála Atli Ísleifsson skrifar 7. janúar 2021 11:24 Donata H. Bukowska, Ingvi Hrannar Ómarsson, Óskar H. Níelsson og Örvar Ólafsson. Menntamálaráðuneytið Donata H. Bukowska, Ingvi Hrannar Ómarsson, Óskar H. Níelsson og Örvar Ólafsson hafa verið ráðin til starfa hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti á skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að þar af séu tvö störf án staðsetningar í nýju skólaþróunarteymi ráðuneytisins. „Störf án staðsetningar eru liður í aðgerðum stjórnvalda sem miða að því að skapa betri tækifæri til atvinnu um allt land og jafna búsetuskilyrði. Sérfræðingar í skólaþróunarteyminu munu starfa þvert á fagskrifstofur menntamála og er einkum ætlað að fylgja eftir áherslum í nýrri menntastefnu til ársins 2030. Í störfin hafa verið ráðin Donata H. Bukowska og Ingvi Hrannar Ómarsson. Ingvi mun sinna starfi sínu frá Sauðárkróki og er fyrsti starfsmaður ráðuneytisins sem ráðinn er í starf án staðsetningar. Ingvi hefur starfað sem verkefnastjóri og kennsluráðgjafi í skólaþróun, nýsköpun og upplýsingatækni hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Donata hefur starfað sem kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með annað móðurmál í grunnskólum Kópavogs. Donata og Ingvi munu bæði hefja störf á næstu mánuðum. Óskar H. Níelsson mun taka við starfi sérfræðings á sviði menntamála en hann flyst úr starfi frá Menntamálastofnun þar sem hann starfaði sem þróunarstjóri. Óskar hefur hafið störf hjá ráðuneytinu. Örvar Ólafsson hefur verið ráðinn sérfræðingur á sviði íþróttamála en hann starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Örvar mun hefja störf hjá ráðuneytinu 1. febrúar næstkomandi,“ segir í tilkynningunni.
Stjórnsýsla Vistaskipti Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent „Mjög afbrýðisöm“ út í Röggu nagla Neytendur Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Sjá meira