Lögðu hald á plöntur og búnað til fíkniefnaframleiðslu Sylvía Hall skrifar 9. janúar 2021 07:32 Lögregla hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni í Hafnarfirði skömmu eftir klukkan tíu í gærkvöldi vegna framleiðslu fíkniefna. Samkvæmt dagbók lögreglu var lagt hald á plöntur og búnað til framleiðslunnar.
Þá var nóttin annasöm í umferðareftirliti en afskipti voru höfð að níu ökumönnum samkvæmt lögreglu. Skömmu fyrir klukkan níu var einn stöðvaður í Garðabæ grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum. Á tólfta tímanum var annar ökumaður stöðvaður í Grafarvogi grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og svo tveir til viðbótar í Árbæ, en í báðum tilvikum þar var ökumaður án ökuréttinda. Fjórir voru stöðvaðir í Breiðholti, þar af þrír á þriðja tímanum í nótt og reyndust þeir allir án ökuréttinda. Tveir höfðu ekki gild ökuréttindi en hinir tveir höfðu verið sviptir og eru grunaðir um ítrekaðan akstur eftir sviptingu. Annar þeirra er einnig grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Einn var svo stöðvaður eftir hraðamælingu á Reykjanesbraut en sá hafði mælst á 117 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80. Ökumaðurinn játaði brotið og óskaði eftir greiðsluseðli, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.
Lögreglumál Hafnarfjörður Reykjavík Mest lesið Ástand mannsins mjög alvarlegt Innlent Fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Árásin á Kjalarnesi: Hinir handteknu allir á fimmtugsaldri Innlent Tveir alvarlega særðir eftir stunguárás á Kjalarnesi Innlent Fyrsta barn ársins 2025 komið í heiminn Innlent Ungur maður lést í flugeldaslysi í Danmörku Erlent Kristrún ekki sein í Kryddsíld: „Ég skil ekki hvernig þetta var hægt“ Innlent Árásarmaðurinn skotinn til bana Erlent „Ég lít á það sem skref í átt til jafnréttis“ Innlent „Sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir“ Innlent Fleiri fréttir „Alltof mikið að gera“ hjá Dýrfinnu yfir áramótin Hlaut stungusár í brjósthol en ekki lengur á gjörgæslu Stunguárás, fálkaorður og ískalt nýársbað Ísþoka hrímaði trjágróður á kaldasta stað landsins í dag Úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald vegna stunguárásar Eldur í Ártúnsbrekkunni Fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Engin umferðarljós og bara tvö hringtorg í Rangárþingi ytra „Ég lít á það sem skref í átt til jafnréttis“ Mengun margfalt yfir heilsuverndarmörkum en varði skemur en óttast var Árásin á Kjalarnesi: Hinir handteknu allir á fimmtugsaldri Stunguárás og álag á bráðamóttöku vegna ofbeldismála Álag vegna ölvunar og ofbeldis og tvö tilfelli vegna flugeldaslysa Auðun hættur hjá K100 eftir átta ár Ástand mannsins mjög alvarlegt Efna til samráðs við almenning um hagræðingu í ríkisrekstri Fyrsta barn ársins 2025 komið í heiminn Ógnaði fólki nærri Hallgrímskirkju Tveir alvarlega særðir eftir stunguárás á Kjalarnesi Hróshringur formanna: „Það liggur fyrir mér að verða markþjálfi“ „Sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir“ Kannast ekkert við ólgu innan flokksins vegna landsfundar Yazan Tamimi er maður ársins Kristrún ekki sein í Kryddsíld: „Ég skil ekki hvernig þetta var hægt“ Fyrsti símafundurinn við utanríkisráðherra Úkraínu Kafarar sóttu mann úr bíl sem fór í höfnina Hér eru brennurnar á höfuðborgarsvæðinu Flokkur fólksins dalar eftir kosningar Árið gert upp í Kryddsíld 2024 Varnargarðsmenn maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Sjá meira