Ógnaði manni með skærum í Kópavogi Sylvía Hall skrifar 10. janúar 2021 07:46 Lögregla hafði í nógu að snúast í gær og í nótt. Vísir/Vilhelm Alls voru níutíu mál skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 síðdegis í gær til klukkan fimm í nótt. Sex voru jafnframt vistaðir í fangaklefum samkvæmt dagbók lögreglu.
Lögregla var kölluð til eftir að maður í annarlegu ástandi hafði gert tilraun til þess að ræna fjármunum af öðrum manni í Kópavogi. Voru skæri notuð til þess að ógna viðkomandi, en hann náði að forða sér á hlaupum og hringja í lögreglu. Gerandi í málinu var handtekinn. Þrír voru handteknir í Hafnarfirði vegna innbrots og þjófnaðar. Talsvert magn af þýfi fannst í fórum þeirra og var það haldlagt. Allir voru vistaðir í fangaklefum vegna málsins. Þá voru tveir handteknir og vistaðir í fangaklefum lögreglu í nótt eftir að hafa verið stöðvaðir á stolnum bíl í Kópavogi. Árekstur var vegna hálku á Hafnarfjarðarvegi. Engin slys urðu á fólki, en skömmu síðar varð annað umferðaróhapp skammt frá þeim slysstað þar sem ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og ók á vegrið. Sá slapp einnig ómeiddur en bifreiðin var óökufær eftir áreksturinn. Nokkrar tilkynningar bárust lögreglu vegna flugelda víðs vegar um borgina, en lögregla var meðal annars kölluð til vegna elds í ruslagámi við Stýrimannaskólann. Er talið að flugeldur hafi verið notaður til þess að kveikja eldinn. Alls voru átta ökumenn stöðvaðir vegna ölvunar eða fíkniefnaaksturs samkvæmt dagbók lögreglu.
Kópavogur Reykjavík Hafnarfjörður Lögreglumál Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira