Foreldrar krabbameinsveikra barna geta endað í örmögnun eftir áralöng einkenni áfallastreituröskunar Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 26. janúar 2021 08:00 Eygló Guðmundsdóttir sálfræðingur skoðaði langtímaáhrif á foreldra barna sem greinst hafa með krabbamein. Sýndu niðurstöður að 9,7 árum eftir að meðferð barnanna lauk voru mæligildin á þeirra líðan orðin þau sömu og hjá foreldrum heilbrigðra barna sem tóku þátt í nafnlausu rannsókninni. Mission framleiðsla „Þau voru með hátt skor á áfallastreitu og miklu hærra en foreldrar sem voru ekki með veik börn,“ segir Eygló Guðmundsdóttir sálfræðingur. Í doktorsnámi sínu skoðaði hún líðan foreldra krabbameinssjúkra barna. Eygló lauk doktorsnámi í heilbrigðisvísindum frá Karolinska Institutet í Svíþjóð. Í rannsóknarverkefni sínu vildi hún kanna líðan foreldra krabbameinssjúkra barna. Hver eru langtímaáhrifin af slíku áfalli og var spurningalisti hennar lagður fyrir hundruð foreldra. „Síðan skoðaði ég tíma líka. Hvað það liði langur tími að meðaltali frá greiningu þar til foreldrar krabbameinssjúkra barna voru komnir á svipaðan stað og foreldrarnir sem voru ekki með veik börn. Það var 9,7 ár eftir greiningu.“ Álagið er mikið á foreldra krabbameinsveikra barna, og streitan hefst strax eftir greiningu og jafnvel fyrr ef veikindasaga barnsins nær lengra aftur. Samkvæmt niðurstöðunum úr rannsókn Eyglóar enda margir þessara foreldra í örmögnun, eða það sem kallast á ensku vital exhaustion. Örmögnun kemur til vegna langvarandi streitu og í mörgum tilfellum í kjölfar áfalla. Eygló sagði frá rannsóknum sínum í þættinum Spjallið með Góðvild og má horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Þættirnir eru sýndir á Vísi alla þriðjudaga. Klippa: Spjallið með Góðvild - Örmagna foreldrar Mikilvægt að styðja þennan hóp Eygló missti son sinn árið 2015 eftir langa veikindabaráttu svo hún þekkir málaflokkinn mjög persónulega líka, ekki bara í gegnum rannsóknirnar og starf sitt sem sálfræðingur. Hún áttaði sig snemma á því að það vantaði meiri stuðning fyrir þennan hóp, líka eftir að langveikt barn fellur frá eins og gerðist í hennar tilfelli. „Það á alltaf að hafa stuðningsmeðferð í boði, alltaf. Ég bjó til módel með þremur mismunandi örmum til að skoða hvað hentar hverjum,“ útskýrir Eygló. Kom hún meðal annars með hugmyndir um markviss, aktív stuðningsúrræði uppi á spítala strax frá greiningu. Nú vonar hún að eitthvað verði gert með hennar rannsóknir og niðurstöður, sem muni gagnast foreldrum allra angveikra barna. Ritgerðin sem Eygló skrifaði um rannsóknina sína. „Það er í raun og veru að við fylgjum þessum foreldrum eftir. Af því við viljum auðvitað síður að fimm árum seinna séu þau komin á þann stað að þau eru farin að fá verki eða fá hjartaáfall í miðri stofu.“ Eygló segir að hún þekki allt of mörg dæmi um slíkt. Þessi hópur eigi líka meiri hættu á hjarta- og æðasjúkdómum, kvíða og ýmsum langvinnum sjúkdómum. Benjamín sonur Eyglóar greindist með hvítblæði aðeins nokkurra vikna gamall og var 12 ára þegar hann lést. Í fyrra viðtali við Spjallið með Góðvild sagði Eygló frá þeirra reynslu. Hægt er að horfa á þann þátt hér á Vísi. Þættirnir Spjallið með Góðvild eru sýndir á Vísi á þriðjudögum. Verkefnið er afurð margra ára samstarfs Sigurðar Hólmars Jóhannessonar sem er í stjórn Góðvildar og Ágústu Fanneyjar Snorradóttur kvikmyndagerðarkonu og eiganda Mission Framleiðslu. Þáttastjórnendur eru Sigurður Hólmar Jóhannesson, Þórunn Eva Pálsdóttir og Ásdís Arna Gottskálksdóttir. Þættirnir eru nýr vettvangur til að koma málefnum langveikra og fatlaðra barna á framfæri og auka í leiðinni sýnileika fyrir mikilvæg málefni. Hægt er að hafa samband við Sigurð og Ágústu Fanney vegna þáttanna í gegnum vefsíðuna www.godvild.is eða samfélagsmiðla félagsins. Með því að styrkja Góðvild þá ertu að styðja við langveik og fötluð börn á Íslandi. Styrktarreikningur 0301-26-660117, kennitala 6601172020. Spjallið með Góðvild Geðheilbrigði Börn og uppeldi Tengdar fréttir Hefur áhrif á alla fjölskylduna Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis hefur allan sinn starfsferil, 41 ár, unnið með fjölskyldum og börnum sem þurfa á aðstoð eða stuðningi að halda. Þar á meðal eru fjölskyldur langveikra og fatlaðra barna. 19. janúar 2021 07:01 „Við vitum ekki hvað við fáum að hafa hann lengi“ Til þess að geta verið á vinnumarkaði þurfa Vera Kristín Vestmann Kristjánsdóttir og maðurinn hennar að treysta á að vera með skilningsríka yfirmenn. Sem foreldrar langveiks barns geta þau ekki verið í fullu starfi og eru því bæði kennarar í skertu hlutfalli. 12. janúar 2021 09:28 „Ég veit ekki ennþá hvernig ég komst í gegnum þetta“ Eygló Guðmundsdóttir eignaðist þrjú börn á innan við fimm árum á meðan hún var í námi. Yngsta barnið, Benjamín, greindist nokkurra vikna gamall með krabbamein og lést aðeins 12 ára að aldri. 5. janúar 2021 11:00 Hægt að spara fjármuni með því að gera þetta betur „Þetta er eiginlega góð saga um það hvernig það að hlusta, og samtalið getur leitt af sér,“ segir Willum Þór Þórsson þingmaður Framsóknarflokksins. Hann setti á árinu af stað vinnu og lagði fram þingsályktunartillögu, sem snýr að bættri þjónustu fyrir langveika og fatlaða og þeirra aðstandendur. 29. desember 2020 08:00 Mest lesið Patrik og Gústi í sundur: „Vinir, veit það ekki“ Lífið Breytt útlit Daða Freys vekur athygli Lífið Elti konuna sína yfir hálfan hnöttinn Menning Horfði á vin sinn fara í snjóflóði Lífið Kærastan vill bara stunda kynlíf í bol Lífið 100 áhrifamestu einstaklingar í heimi Lífið Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Lífið Falleg sérhæð í Hlíðunum Lífið Óvenjulegar móttökur þegar Icelandair lenti í Nashville í fyrsta inn Lífið Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar Lífið Fleiri fréttir Hátíðlegur páskamatseðill að hætti Móniku á Apótekinu 100 áhrifamestu einstaklingar í heimi Óvenjulegar móttökur þegar Icelandair lenti í Nashville í fyrsta inn Breytt útlit Daða Freys vekur athygli Horfði á vin sinn fara í snjóflóði Falleg sérhæð í Hlíðunum Patrik og Gústi í sundur: „Vinir, veit það ekki“ Kærastan vill bara stunda kynlíf í bol Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Skuggavaldið: Dýrð og dauði dansa saman í blóði og bjarma Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Kastaði Pétri og Sveppa fram og til baka í indverskri glímu Páskaleg og fersk marengsbomba Alls ekki öll von úti fyrir Væb-bræður Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar „Afhverju myndi maður ekki vilja fara alla leið?“ Tilkynna leikara fyrir nýja Harry Potter þáttaröð Logi Þorvalds, Timothée Chalamet og Kylie í stuði á Coachella Bein útsending: Katy Perry fer út í geim Skandall sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna Blómin í veisluskreytingunni fara svo út í garð og blómstra áfram Stóra stundin runnin upp hjá Sigrúnu Ósk Stjörnulífið: Skvísurnar stálu senunni Sendi syninum stöðugt óbein skilaboð um að hann elskaði hann ekki Fékk afsökunarbeiðni frá SNL eftir „illkvittinn og ófyndinn“ skets Ítalskur heilafúi dreifir sér um heimsbyggðina Laufey tróð upp á Coachella Sjóðheit stemning og fróunarklefinn frumsýndur Sjá meira
Eygló lauk doktorsnámi í heilbrigðisvísindum frá Karolinska Institutet í Svíþjóð. Í rannsóknarverkefni sínu vildi hún kanna líðan foreldra krabbameinssjúkra barna. Hver eru langtímaáhrifin af slíku áfalli og var spurningalisti hennar lagður fyrir hundruð foreldra. „Síðan skoðaði ég tíma líka. Hvað það liði langur tími að meðaltali frá greiningu þar til foreldrar krabbameinssjúkra barna voru komnir á svipaðan stað og foreldrarnir sem voru ekki með veik börn. Það var 9,7 ár eftir greiningu.“ Álagið er mikið á foreldra krabbameinsveikra barna, og streitan hefst strax eftir greiningu og jafnvel fyrr ef veikindasaga barnsins nær lengra aftur. Samkvæmt niðurstöðunum úr rannsókn Eyglóar enda margir þessara foreldra í örmögnun, eða það sem kallast á ensku vital exhaustion. Örmögnun kemur til vegna langvarandi streitu og í mörgum tilfellum í kjölfar áfalla. Eygló sagði frá rannsóknum sínum í þættinum Spjallið með Góðvild og má horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Þættirnir eru sýndir á Vísi alla þriðjudaga. Klippa: Spjallið með Góðvild - Örmagna foreldrar Mikilvægt að styðja þennan hóp Eygló missti son sinn árið 2015 eftir langa veikindabaráttu svo hún þekkir málaflokkinn mjög persónulega líka, ekki bara í gegnum rannsóknirnar og starf sitt sem sálfræðingur. Hún áttaði sig snemma á því að það vantaði meiri stuðning fyrir þennan hóp, líka eftir að langveikt barn fellur frá eins og gerðist í hennar tilfelli. „Það á alltaf að hafa stuðningsmeðferð í boði, alltaf. Ég bjó til módel með þremur mismunandi örmum til að skoða hvað hentar hverjum,“ útskýrir Eygló. Kom hún meðal annars með hugmyndir um markviss, aktív stuðningsúrræði uppi á spítala strax frá greiningu. Nú vonar hún að eitthvað verði gert með hennar rannsóknir og niðurstöður, sem muni gagnast foreldrum allra angveikra barna. Ritgerðin sem Eygló skrifaði um rannsóknina sína. „Það er í raun og veru að við fylgjum þessum foreldrum eftir. Af því við viljum auðvitað síður að fimm árum seinna séu þau komin á þann stað að þau eru farin að fá verki eða fá hjartaáfall í miðri stofu.“ Eygló segir að hún þekki allt of mörg dæmi um slíkt. Þessi hópur eigi líka meiri hættu á hjarta- og æðasjúkdómum, kvíða og ýmsum langvinnum sjúkdómum. Benjamín sonur Eyglóar greindist með hvítblæði aðeins nokkurra vikna gamall og var 12 ára þegar hann lést. Í fyrra viðtali við Spjallið með Góðvild sagði Eygló frá þeirra reynslu. Hægt er að horfa á þann þátt hér á Vísi. Þættirnir Spjallið með Góðvild eru sýndir á Vísi á þriðjudögum. Verkefnið er afurð margra ára samstarfs Sigurðar Hólmars Jóhannessonar sem er í stjórn Góðvildar og Ágústu Fanneyjar Snorradóttur kvikmyndagerðarkonu og eiganda Mission Framleiðslu. Þáttastjórnendur eru Sigurður Hólmar Jóhannesson, Þórunn Eva Pálsdóttir og Ásdís Arna Gottskálksdóttir. Þættirnir eru nýr vettvangur til að koma málefnum langveikra og fatlaðra barna á framfæri og auka í leiðinni sýnileika fyrir mikilvæg málefni. Hægt er að hafa samband við Sigurð og Ágústu Fanney vegna þáttanna í gegnum vefsíðuna www.godvild.is eða samfélagsmiðla félagsins. Með því að styrkja Góðvild þá ertu að styðja við langveik og fötluð börn á Íslandi. Styrktarreikningur 0301-26-660117, kennitala 6601172020.
Þættirnir Spjallið með Góðvild eru sýndir á Vísi á þriðjudögum. Verkefnið er afurð margra ára samstarfs Sigurðar Hólmars Jóhannessonar sem er í stjórn Góðvildar og Ágústu Fanneyjar Snorradóttur kvikmyndagerðarkonu og eiganda Mission Framleiðslu. Þáttastjórnendur eru Sigurður Hólmar Jóhannesson, Þórunn Eva Pálsdóttir og Ásdís Arna Gottskálksdóttir. Þættirnir eru nýr vettvangur til að koma málefnum langveikra og fatlaðra barna á framfæri og auka í leiðinni sýnileika fyrir mikilvæg málefni. Hægt er að hafa samband við Sigurð og Ágústu Fanney vegna þáttanna í gegnum vefsíðuna www.godvild.is eða samfélagsmiðla félagsins. Með því að styrkja Góðvild þá ertu að styðja við langveik og fötluð börn á Íslandi. Styrktarreikningur 0301-26-660117, kennitala 6601172020.
Spjallið með Góðvild Geðheilbrigði Börn og uppeldi Tengdar fréttir Hefur áhrif á alla fjölskylduna Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis hefur allan sinn starfsferil, 41 ár, unnið með fjölskyldum og börnum sem þurfa á aðstoð eða stuðningi að halda. Þar á meðal eru fjölskyldur langveikra og fatlaðra barna. 19. janúar 2021 07:01 „Við vitum ekki hvað við fáum að hafa hann lengi“ Til þess að geta verið á vinnumarkaði þurfa Vera Kristín Vestmann Kristjánsdóttir og maðurinn hennar að treysta á að vera með skilningsríka yfirmenn. Sem foreldrar langveiks barns geta þau ekki verið í fullu starfi og eru því bæði kennarar í skertu hlutfalli. 12. janúar 2021 09:28 „Ég veit ekki ennþá hvernig ég komst í gegnum þetta“ Eygló Guðmundsdóttir eignaðist þrjú börn á innan við fimm árum á meðan hún var í námi. Yngsta barnið, Benjamín, greindist nokkurra vikna gamall með krabbamein og lést aðeins 12 ára að aldri. 5. janúar 2021 11:00 Hægt að spara fjármuni með því að gera þetta betur „Þetta er eiginlega góð saga um það hvernig það að hlusta, og samtalið getur leitt af sér,“ segir Willum Þór Þórsson þingmaður Framsóknarflokksins. Hann setti á árinu af stað vinnu og lagði fram þingsályktunartillögu, sem snýr að bættri þjónustu fyrir langveika og fatlaða og þeirra aðstandendur. 29. desember 2020 08:00 Mest lesið Patrik og Gústi í sundur: „Vinir, veit það ekki“ Lífið Breytt útlit Daða Freys vekur athygli Lífið Elti konuna sína yfir hálfan hnöttinn Menning Horfði á vin sinn fara í snjóflóði Lífið Kærastan vill bara stunda kynlíf í bol Lífið 100 áhrifamestu einstaklingar í heimi Lífið Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Lífið Falleg sérhæð í Hlíðunum Lífið Óvenjulegar móttökur þegar Icelandair lenti í Nashville í fyrsta inn Lífið Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar Lífið Fleiri fréttir Hátíðlegur páskamatseðill að hætti Móniku á Apótekinu 100 áhrifamestu einstaklingar í heimi Óvenjulegar móttökur þegar Icelandair lenti í Nashville í fyrsta inn Breytt útlit Daða Freys vekur athygli Horfði á vin sinn fara í snjóflóði Falleg sérhæð í Hlíðunum Patrik og Gústi í sundur: „Vinir, veit það ekki“ Kærastan vill bara stunda kynlíf í bol Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Skuggavaldið: Dýrð og dauði dansa saman í blóði og bjarma Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Kastaði Pétri og Sveppa fram og til baka í indverskri glímu Páskaleg og fersk marengsbomba Alls ekki öll von úti fyrir Væb-bræður Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar „Afhverju myndi maður ekki vilja fara alla leið?“ Tilkynna leikara fyrir nýja Harry Potter þáttaröð Logi Þorvalds, Timothée Chalamet og Kylie í stuði á Coachella Bein útsending: Katy Perry fer út í geim Skandall sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna Blómin í veisluskreytingunni fara svo út í garð og blómstra áfram Stóra stundin runnin upp hjá Sigrúnu Ósk Stjörnulífið: Skvísurnar stálu senunni Sendi syninum stöðugt óbein skilaboð um að hann elskaði hann ekki Fékk afsökunarbeiðni frá SNL eftir „illkvittinn og ófyndinn“ skets Ítalskur heilafúi dreifir sér um heimsbyggðina Laufey tróð upp á Coachella Sjóðheit stemning og fróunarklefinn frumsýndur Sjá meira
Hefur áhrif á alla fjölskylduna Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis hefur allan sinn starfsferil, 41 ár, unnið með fjölskyldum og börnum sem þurfa á aðstoð eða stuðningi að halda. Þar á meðal eru fjölskyldur langveikra og fatlaðra barna. 19. janúar 2021 07:01
„Við vitum ekki hvað við fáum að hafa hann lengi“ Til þess að geta verið á vinnumarkaði þurfa Vera Kristín Vestmann Kristjánsdóttir og maðurinn hennar að treysta á að vera með skilningsríka yfirmenn. Sem foreldrar langveiks barns geta þau ekki verið í fullu starfi og eru því bæði kennarar í skertu hlutfalli. 12. janúar 2021 09:28
„Ég veit ekki ennþá hvernig ég komst í gegnum þetta“ Eygló Guðmundsdóttir eignaðist þrjú börn á innan við fimm árum á meðan hún var í námi. Yngsta barnið, Benjamín, greindist nokkurra vikna gamall með krabbamein og lést aðeins 12 ára að aldri. 5. janúar 2021 11:00
Hægt að spara fjármuni með því að gera þetta betur „Þetta er eiginlega góð saga um það hvernig það að hlusta, og samtalið getur leitt af sér,“ segir Willum Þór Þórsson þingmaður Framsóknarflokksins. Hann setti á árinu af stað vinnu og lagði fram þingsályktunartillögu, sem snýr að bættri þjónustu fyrir langveika og fatlaða og þeirra aðstandendur. 29. desember 2020 08:00