Í ár verða einnig veittar tvær viðurkenningar, sérstök heiðursviðurkenning og viðurkenning fyrir útgefið efni á sviði myndlistar.
Myndlistarráð stendur nú í fjórða skiptiað úthlutun Íslensku myndlistarverðlaunanna en markmiðið er að heiðra íslenska myndlistarmenn, eða myndlistarmenn sem búsettir eru á Íslandi, og vekja athygli á því sem vel er gert jafnframt því að hvetja til nýrrar listsköpunar.
Eftirfarandi myndlistarmenn eru í forvali til Myndlistarmanns ársins:
- Haraldur Jónsson fyrir sýninguna Ljósavél í gallerí Berg Contemporary. 19. des. 2020 – 27. feb. 2021.
- Margrét H. Blöndal fyrir sýninguna Loftleikur í i8 Gallerí. 3. sept. – 10. okt. 2020.
- Libia Castro og Ólafur Ólafsson fyrir verkið Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland, Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús og á götum úti við Stjórnarráð og Alþingi Íslands, 3. okt. 2020 í samstarfi við tónlistar- og myndlistarhátíðina Cycle og Listahátíð í Reykjavík.
- Selma Hreggviðsdóttir og Sirra Sigrún Sigurðardóttir fyrir sýninguna Ljósvaki í gallerí Berg Contemporary. 24. jan. – 21. mars 2020.
Eftirfarandi myndlistarmenn eru í forvali til Hvatningarverðlauna ársins:
- Andreas Brunner fyrir sýninguna,Ekki brotlent enn, D41, í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, sýningarstjóri Markús Þór Andrésson. 19. mars – 7. júní 2020.
- Guðlaug Mía Eyþórsdóttir fyrir sýninguna Milli hluta í Listasal Mosfellsbæjar. 14. sept. – 9. okt. 2020.
- Una Björg Magnúsdóttir fyrir sýninguna Mannfjöldi hverfur sporlaust um stund, D40, í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, sýningarstjóri Aldís Snorradóttir.16. jan. – 15. mars 2020.
Greint verður frá því hver af þessum fjórum hlýtur Myndlistarverðlaun ársins og hver hlýtur Hvatningarverðlaun ársins fimmtudaginn 25. febrúar 2021.

Í ár mun Myndlistarráð einnig veita í fyrsta skipti tvær viðurkenningar; Heiðursviðurkenningu og viðurkenningu fyrir útgefið efni á sviði myndlistar. Heiðursviðurkenning fellur í skaut starfandi myndlistarmanns fyrir heildarframlag hans til íslenskrar myndlistar. Viðurkenning fyrir útgefið efni, hvort heldur sem er í prentuðu eða stafrænu formi, er veitt stofnun, einstaklingi eða fyrirtæki sem staðið hefur að framlagi sem talið er hafa mikilvægt gildi fyrir kynningu og rannsóknir á íslenskri myndlist.
Myndlistarráð tekur ákvörðun um hverjir hljóta viðurkenningar, en í ráðinu situr fulltrúi frá mennta- og menningarráðuneyti, Listasafni Íslands og Listfræðafélagi Íslands ásamt tveimur fulltrúum Sambands íslenskra myndlistarmanna.
Dómnefnd Íslensku myndlistarverðlaunanna 2021 skipa:
- Helgi Þorgils Friðjónsson, formaður dómnefndar (Myndlistarráð)
- Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir (Listfræðafélag Íslands)
- Helga Óskarsdóttir (Samband íslenskra myndlistarmanna)
- Valur Brynjar Antonsson (fulltrúi safnstjóra íslenskra myndlistarsafna)
- Þorbjörg Jónsdóttir (Listaháskóli Íslands)