Viðskipti innlent

Gistinóttum á hótelum fækkaði um 93 prósent í janúar

Atli Ísleifsson skrifar
Miðað við bráðabirgðatölur sem byggja á fyrstu skilum fyrir janúarmánuð megi ætla að gistinætur á hótelum í janúar hafi verið um 20 þúsund.
Miðað við bráðabirgðatölur sem byggja á fyrstu skilum fyrir janúarmánuð megi ætla að gistinætur á hótelum í janúar hafi verið um 20 þúsund. Vísir/Vilhelm

Gistinóttum á hótelum fækkaði um 93 prósent í janúar. Þetta kemur fram á síðu Hagstofunnar.

Miðað við bráðabirgðatölur sem byggja á fyrstu skilum fyrir janúarmánuð megi ætla að gistinætur á hótelum í janúar hafi verið um 20 þúsund (95 prósent öryggismörk 16 þúsund-23 þúsund). Þar af hafi íslenskar gistinætur verið um 16 þúsund (95 prósent öryggismörk 13 þúsund til 19 þúsund) og gistinætur útlendinga um fjögur þúsund (95 prósent öryggismörk tvö til fimm þúsund).

„Borið saman við 291.100 gistinætur í janúar 2020 má ætla að orðið hafi um það bil 93% samdráttur á fjölda gistinátta í janúar á milli ára. Þar af má ætla að gistinóttum Íslendinga hafi fækkað um á að giska 48% frá sama mánuði í fyrra en gistinætur útlendinga hafi á sama tíma dregist saman um 98,5%.

Samkvæmt sömu áætlun var rúmanýting í janúar 2021 um 4,8% (95% öryggismörk: 4,1%-5,5%) samanborið við 41,4% í sama mánuði í fyrra.

Þar sem samanburður á bráðabirgðamati og endanlegum tölum leiddi í ljós að fyrstu bráðabirgðatölum hætti til að ofmeta fjölda gistinátta miðað við endanlegar tölur var leiðréttingu bætt við útreikninga frá og með tölum fyrir október 2020 til þess að gera ráð fyrir þessu. Bráðabirgðatölur fyrir desember 2020 gerðu ráð fyrir að gistinætur hefðu verið um 25.000 (95% öryggismörk 20.000-31.000) en þegar búið var að vinna úr öllum tölum fyrir desember reyndist endanlegur fjöldi gistinátta hafa verið 21.277 sem var innan 95% öryggismarka,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×