Spánarmeistarar Real Madrid unnu sannfærandi sigur á Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í dag.
Karim Benzema kom heimamönnum í forystu strax á 12.mínútu eftir stoðsendingu frá Toni Kroos.
Kroos sá sjálfur til þess að Real Madrid færi í hálfleikinn með tveggja marka forystu þar sem hann skoraði á 42.mínútu eftir undirbúning Lucas Vazquez.
Ekkert mark var skorað í síðari hálfleik og öruggur sigur Real Madrid staðreynd. Eru þeir nú fimm stigum á eftir toppliði Atletico Madrid, sem á reyndar tvo leiki til góða. Valencia í tólfta sæti.