H Verslun opnar endurbætta vefverslun með heimsþekkt vörumerki Icepharma 16. febrúar 2021 08:50 Íþróttakonan Hekla Sif Magnúsdóttir í fatnaði frá H Verslun Aldís Pálsdóttir H Verslun er vefverslun vikunnar á Vísi.
Ný og endurbætt vefverslun H Verslunar, hverslun.is er komin í loftið. Verslunin býður upp á allt sem þarf til að stuðla að heilsusamlegum lífsstíl svo sem fatnað, skó, bætiefni, snyrtivörur og aukahluti. Heimsþekkt vörumerki er að finna í versluninni á borð við Nike, Speedo, Houdini, Garmin og NOW svo nokkur séu nefnd. H Verslun er vefverslun vikunnar á Vísi. Vöruúrval sem spannar alla heilsuflóruna „Okkar markmið er að hvetja fólk til þess að huga að heilsunni og gera því kleift að stunda sína hreyfingu og ástunda heilbrigðan lífsstíl. Á síðunni er allt sem þú þarft á einum stað og vöruframboðið og þjónustan endurspeglar það sem H Verslun stendur fyrir. Við vildum sömuleiðis bæta aðgengi viðskiptavina að vöruúrvali okkar og höfum því stórbætt alla notendaupplifun á síðunni,“ segir Trausti Þór Karlsson, deildarstjóri hönnunar og stafrænna miðla hjá Icepharma. Allt fyrir hreyfingunaAldís Pálsdóttir Vöruúrval verslunarinnar spannar alla heilsuflóruna og er til að mynda þar að finna eitt mesta úrval af Nike vörum á Íslandi. Þar má auðveldlega nálgast æfingafatnað, skó og búnað fyrir vinsælustu tegundir hreyfingar hvort sem það eru hlaup, golf, sund eða fjallgöngur en einnig hverdagsfatnað fyrir bæði börn og fullorðna. Þegar kemur að útivistinni má finna vörumerki eins og Houdini sem hannar og framleiðir hágæða útivistarvörur, allt frá ullarfatnaði upp í hágæða skeljar og úlpur. Það sem er einstakt við vörurnar frá Houdini er að framleiðslan er umhverfisvæn og fatnaðurinn endurvinnanlegur og endurnýtanlegur. Houdini framleiðir hágæða útivistarvörur Bætiefni hafa lengi átt stóran sess í H Verslun og ber þar einna helst að nefna mesta úrval landsins af NOW vörum. Í versluninni má einnig finna úrval húðvara frá Neostrata og undir flokknum heimili má finna tannheilsuvörur frá Curaprox, ilmolíulampa og ilmkjarnaolíur, lífræna matvöru og sætuefni. Mikið úrval frá Now er að finna í H Verslun Skýr fókus á notendaupplifun Með bættri notendaupplifun hefur þjónustustig H Verslunar verið aukið með margvíslegum hætti. Notendur geta meðal annars skoðað vörur tengdar sinni uppáhalds hreyfingu, til dæmis vörur tengdar hlaupum, æfingum, sundi, útivist, golfi o.fl. Öll vöruleit og framstilling á vörum á síðunni hefur verið endurbætt og ferlið einfaldað fyrir notendur. Þá geta notendur sem skrá sig inn á síðuna gefið upplýsingar um sín áhugamál í skráningarferlinu og þannig fengið persónulegri upplifun á síðunni og séð efni og skilaboð tengt þeirra áhugamálum. H Verslun er með sundfatnað frá SpeedoAldís Pálsdóttir Kaupferlið sjálft hefur einnig verið einfaldað og viðskiptavinir eru nú betur upplýstir um stöðu pantana og hvenær megi vænta afhendinga. Þá hafa bæst við fleiri afhendingarmöguleikar og nú er hægt að fá sent í póstbox eða næsta Pakkaport Póstsins. Vörur frá Neostrata fást í H Verslun Áhersla á heilsusamlegan lífsstíl Fyrir þá sem vilja ástunda heilsusamlegan lífsstíl er H Verslun tilvalinn áfangastaður. Í tilefni af nýrri og endurbættri hverslun.is er 15% afsláttur af fyrstu pöntun fyrir þá sem skrá sig í H klúbbinn.
Heilsa Vefverslun vikunnar Lífið Mest lesið Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Atvinnulíf Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Viðskipti innlent Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Viðskipti innlent Landsbankinn við Austurstræti falur Viðskipti innlent Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Viðskipti innlent Hefja flug til Edinborgar og Malaga Viðskipti innlent Sjóvá tapar hálfum milljarði Viðskipti innlent Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Viðskipti innlent Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent