Veðrinu stjórnað af hæðum yfir Bretlandseyjum og Grænlandi Eiður Þór Árnason skrifar 6. mars 2021 09:00 Gera má ráð fyrir mildu veðri víðast hvar á landinu í dag. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð suðlægri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu en austan átta til þrettán við norðausturströndina. Gera má ráð fyrir dálítilli vætu með köflum en lítilsháttar slyddu eða snjókomu norðaustantil fram eftir degi. Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig, bjart með köflum og milt veður. Léttir til um sunnanvert landið í kvöld.
Að sögn veðurfræðings er veðrinu í dag og á morgun að stærstum hluta stjórnað af hæð yfir Bretlandseyjum og annarri yfir Grænlandi. Þessum hæðum fylgi yfirleitt hægir vindar og bjart veður en þó séu litlar lægðarbólur á sveimi í kringum landið sem muni orsaka það að staðbundið geti vindur orðið sterkari eða einhver úrkoma fallið. „Lægðarbólurnar munu svo grynnast og fjarlægast landið smám saman í dag og kvöld og á morgun er útlit fyrir hæga breytilega átt og bjartviðri í öllum landshlutum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Spáð er breytilegri átt, þremur til átta metrum á sekúndu á morgun og bjartviðri en lítilsháttar vætu norðvestantil framundir hádegi. Þá verður vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestanlands annað kvöld. Hiti tvö til sjö stig að deginum en kringum frostmark norðaustanlands. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Vaxandi suðaustan átt, 8-15 m/s og rigning fyrir hádegi en þurrt á Norður- og Austurlandi til kvölds. Hiti 2 til 6 stig. Snýst í suðvestan 5-10 með slydduéljum sunnan- og vestanlands síðdegis og kólnar. Á þriðjudag: Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og bjart með köflum en dálítil úrkoma við norðaustur ströndina í fyrstu. Heldur vaxandi norðaustanátt og þykknar upp suðaustantil um kvöldið. Hiti 0 til 4 stig syðst annars um frostmark. Á miðvikudag: Norðaustan 10-18 m/s og rigning eða slydda en snjókoma til fjalla. Úrkomuminna á Suður og Suðvesturlandi. Hiti 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Norðaustlæg átt og skúrir eða él en skýjað með köflum og þurrt á Suður og Suðvesturlandi. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Norðaustanátt og él norðan og austanlands en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Heldur kólnandi í veðri.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira