Börsungar niðurlægðu Sociedad á útivelli 21. mars 2021 21:59 Tvenna frá þessum í kvöld. vísir/getty Fátt fær stöðvað Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta þessa dagana og Real Sociedad reyndist þeim engin fyrirstaða í síðasta leik helgarinnar. Antoine Griezmann opnaði markaveisluna á sínum gamla heimavelli þegar hann kom Barcelona í forystu eftir rúmlega hálftíma leik. Sergino Dest tvöfaldaði forystuna skömmu fyrir leikhlé. Í síðari hálfleik settu Börsungar svo í fluggírinn. Dest skoraði sitt annað mark á 53.mínútu og skömmu síðar kom Lionel Messi sér á blað þegar hann skoraði fjórða mark Barcelona 0-4 varð 0-5 þegar Ousmane Dembele skoraði á 70.mínútu en Ander Barrenetxea klóraði í bakkann fyrir heimamenn áður en Messi skoraði annað mark sitt og innsiglaði 1-6 stórsigur Barcelona. Barcelona nú fjórum stigum á eftir toppliði Atletico Madrid. Spænski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn