Samhliða hertum sóttvarnarráðstöfunum á landamærum sem tóku gildi á miðnætti var sóttkvíarhótelið við Þórunnartún opnað í morgun. Samkvæmt reglunum þurfa þeir sem koma hingað til lands frá skilgreindum áhættusvæðum að fara á hótelið á milli fyrri og seinni sýnatöku. Það eru Sjúkratryggingar sem leigja húsnæðið undir starfsemina en Rauði krossinn hefur umsjón með hótelinu og þjónustar gesti þess.
Fyrstu tveir gestirnir komu frá London í morgun. Þá komu átján gestir upp úr hádegi sem komu frá Frankfurt.

„Þetta er ekki búið að vera snurðulaust. Við erum alveg að læra af mistökunum en við vorum svolítið heppin að fyrsta vélin var bara með tvo og svo fengum við átján þannig við fengum að gera mistök án þess að væri eitthvað rosalega mikið stress,“ segir Áslaug Ellen Yngvadóttir, umsjónarmaður sóttkvíarhótelsins. Heilt yfir hafi þó gengið vel.
Búið er að ráða tæplega áttatíu starfsmenn á hótelið. Starfsmennirnir voru að klæða sig í búnaðinn þegar fréttastofu bar að garði upp úr klukkan fimm í dag. Skömmu síðar komu um 38 gestir á hótelið.

„Þau þurfa að fara yfir hjá hvort öðru hvort allt sé rétt gert og við hjá þeim því við þurfum náttúrulega að huga vel að sóttvörnum okkar starfsmanna,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður farsóttarhúsa.
Von er á fleiri gestum í kvöld. „Svo kemur önnur vel seinna í kvöld og þá koma örugglega yfir hundrað manns þannig þetta verður langur og strangur dagur hjá okkur hérna á hótelinu,“ segir Örvar Rafnsson, umsjónarmaður sóttkvíarhótelsins.

Og hvað má fólk gera á hótelinu? „Bara njóta og lifa rólega í sóttkví. Það er eiginlega það sem má gera,“ segir Áslaug.
Má fólk fara út af herberginu sínu? „Við vorum bara að opna í dag og það eru hlutir sem eru enn ekki komnir á hreint. Við erum að vinna í því að útfæra það hvernig það verður, ef það verður leyft. Þetta er flókið, þetta er stórt hótel og það verður mjög mikið af fólki hérna og við þurfum að tryggja öryggi okkar gesta. Það geta líka verið hópar að koma á sama tíma, rútur að koma, þetta er mjög flókið mál þannig að við erum bara að vinna í því hvernig það verður?,“ segir Áslaug.
Þannig það er ekki alveg komið á hreint hvernig það verður?
„Í rauninni ekki,“ segir Áslaug.