Viðskipti innlent

Sviðum fækkað og nýir starfs­menn ráðnir

Atli Ísleifsson skrifar
Ída Margrét Jósepsdóttir, Jóhanna Klara Stefánsdóttir, Lilja Björk Guðmundsdóttir og Sigríður Mogensen.
Ída Margrét Jósepsdóttir, Jóhanna Klara Stefánsdóttir, Lilja Björk Guðmundsdóttir og Sigríður Mogensen. SI

Nýtt svið iðnaðar og hugverka hefur verið sett á laggirnar hjá Samtökum iðnaðarins en með skipulagsbreytingunum hefur sviðum verið fækkað úr þremur í tvö.Nýtt svið iðnaðar og hugverka hefur verið sett á laggirnar hjá Samtökum iðnaðarins en með skipulagsbreytingunum hefur sviðum verið fækkað úr þremur í tvö.

Í tilkynningu frá SI segir að sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs sé Sigríður Mogensen en undir sviðið heyri fyrirtæki í greinum iðnaðar, meðal annars í framleiðslu-, matvæla-, hátækni- og hugverkaiðnaði. Þá segir að orkusækinn iðnaður heyri einnig undir nýja sviðið.

Mannvirkjasvið er áfram starfrækt í óbreyttri mynd en undir það heyra fyrirtæki í bygginga- og mannvirkjaiðnaði. Sviðsstjóri mannvirkjasviðs er Jóhanna Klara Stefánsdóttir.

„Þá hafa tveir nýir starfsmenn verið ráðnir til samtakanna sem hafa þegar hafið störf. Lilja Björk Guðmundsdóttir er nýr viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði og Ída Margrét Jósepsdóttir er aðstoðarmaður framkvæmdastjóra.

Lilja Björk er með BA og ML í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í evrópskum stjórnskipunarrétti frá Háskólanum í Granada auk þess sem hún hefur málflutningsréttindi fyrir Héraðsdómi. Hún starfaði síðast hjá Rauða krossinum sem lögfræðingur og teymisstjóri í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Ída Margrét er með BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands. Hún kemur frá J.P. Morgan í London þar sem hún starfaði sem sérfræðingur í alþjóðlegu verkefnastjórnunarteymi og aðstoðarmaður framkvæmdastjóra. Áður starfaði hún sem aðstoðarmaður stjórnarformanns Kaupþings banka,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×