Aðeins helmingur útskrifast á réttum tíma í MH Snorri Másson skrifar 8. maí 2021 08:01 Stytting framhaldsskólanna hefur vissulega stytt framhaldsskólana, en ekki alls kostar alveg niður í þrjú ár. Víða í fjölbrautarskólum útskrifast verulegur hluti nemenda á að minnsta kosti þremur og hálfu ári. Vísir/Vilhelm Aðeins um helmingur nemenda í Menntaskólanum í Hamrahlíð útskrifast á tilsettum tíma eftir styttingu framhaldsskólanna í þrjú ár, sex árum eftir að breytingin var innleidd í flesta menntaskóla landsins. Hinn helmingurinn útskrifast á þremur og hálfu ári eða lengri tíma.
Á sama hátt segir skólameistari í FG að meðalnámstími nemenda þar sé nær þremur og hálfu ári en þremur árum. Yfirlýst markmið stjórnvalda og framhaldskólanna var og er að stytta námstímann. Kristinn Þorsteinsson, skólameistari í FG og formaður Skólameistarafélags Íslands.Einar Árnason „En þar þarf að athuga, að þetta var náttúrulega gert með því að fækka einingum til stúdentsprófs en einingum var kannski ekki fækkað nægilega mikið til að það sé auðvelt að klára á þremur árum. Það er aðeins meira en fullt nám að ljúka þessu á þremur árum,“ segir Kristinn Þorsteinsson, skólameistari í FG og formaður Skólameistarafélags Íslands. Fyrir styttingu námsins, sem Illugi Gunnarsson þáverandi menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins stóð fyrir, tíðkaðist í nokkrum mæli, en þó minni, að nemendur í fjölbrautarskólum útskrifuðust á lengri tíma en fjórum árum. Blómstra ekki í félagslífinu fyrr en á fjórða ári Steinn Jóhannsson, rektor MH. Tilfinning Steins Jóhannssonar, rektors MH, er sú að hærra hlutfall nemenda útskrifist eftir aukaönn nú en áður en styttingin tók gildi. Hvort það megi skilja sem mótmæli nemenda við stuttum námstíma, skal Steinn ekki segja, en þó sé ljóst að margir blómstri ekki fyrr en á þriðja ári í skólanum. „Við skiljum vel að nemendur kjósi að taka þetta á þremur og hálfu ári. Margir eru uppteknir í tónlist, afreksíþróttum eða öðrum tómstundum og með marga bolta á lofti. Aðrir blómstra ekki í félagslífinu fyrr en á þriðja ári og vilja þá halda aðeins áfram. Við höfum séð marga gera það,“ segir Steinn. Steinn hefur beinlínis hvatt nemendur sína til þess að taka námið á þeim hraða sem þeir kjósa og bendir á að það hafi komið fyrir tvisvar á undanförnum árum að jólaútskriftin sé stærri en vorútskriftin, en um jólin útskrifast þeir sem ekki eru í heil þrjú ár. Slíkt er mjög til marks um mikinn fjölda þeirra sem velja að taka námið á þremur og hálfu ári. Skólinn sem heitast þráði undanþágu fer á mis við hana Áður en námið var stytt var hefðbundið stúdentspróf í einingakerfi upp á 240 einingar, 30 á hverja önn. Í nýja kerfinu eru einingarnar almennt um 200, t.d. 202 í FG. Það gerir 33 einingar á önn, sem þýðir að álagið er einfaldlega meira. Í bekkjarkerfi eins og í Menntaskólanum í Reykjavík var námsefninu þjappað saman niður á þrjú ár í stað fjögurra þrátt fyrir mótspyrnu MR, sem var þó á meðal fárra skóla sem mótmælti breytingunni svo nokkru næmi. Í bekkjarkerfi útskrifast fólk annaðhvort á fjórum árum eða þremur, sjaldnast við hálfa árið. Því má líta svo á að á meðan MR hafi ekki orðið að ósk sinni um að komið yrði til móts við skólann, hafi fjölbrautarskólar, sem sumir hreyfðu ekki mótmælum við styttingu skólans, enn fengið að möguleikanum á lengra námi opnum. Sú heimild fékkst þannig að sínu leyti án þess að um hana væri beðið, en víst er að hún er nýtt í þaula. Að sögn ofangreindra skólameistara eru margþættar ástæður fyrir því að fólk velji að vera aukaönn. Margir eru að búa sig undir háskólanám, þar sem ríkar kröfur eru gerðar á ákveðnum sviðum. Þá eru teknir áfangar til viðbótar. Aðrir koma inn í menntaskóla veikir fyrir í ákveðnum greinum, með C eða D eins og það er skilgreint í dag. Þeir fara í eins konar inngangsáfanga í þeim greinum, sem einnig getur tafið eðlilegan gang námsins.
Skóla - og menntamál Framhaldsskólar Tengdar fréttir Gerð verður úttekt á áhrifum styttingar framhaldsskólanámsins Utanaðkomandi aðila verður falið að gera úttekt á áhrifum styttingar framhaldsskólanáms til stúdentsprófs í þrjú ár. Umfang þeirrar úttektar hefur ekki verið ákveðið en miðað er við að verkefnisáætlun verði tilbúin fyrir jól. 20. nóvember 2018 19:30 „Það erum við sem þurfum að gefa afsláttinn“ Þrátt fyrir að framhaldsskóli hafi verið styttur í þrjú ár gefa margir nemendur sér lengri tíma til að ljúka námi. Nemandi í FG segir hættulega mikið álag vera á nemendur og hefur sent menntamálaráðherra bréf til að lýsa óánægju sinni. 6. nóvember 2018 20:30 Gríðarleg aukning í umsóknum um nám í háskólum landsins Mikil fjölgun varð milli ára á umsóknum um nám í háskólunum. Þetta skýrist aðallega af breytingum á fyrirkomulagi stúdentsprófa þar sem flestir framhaldsskólar útskrifa tvöfalda árganga í vor. Háskólarektor segir sérstakt ánægjuefni að umsóknum um grunnnám í leikskólakennarafræði fjölgi um 60 prósent. 8. júní 2018 07:00 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira
Gerð verður úttekt á áhrifum styttingar framhaldsskólanámsins Utanaðkomandi aðila verður falið að gera úttekt á áhrifum styttingar framhaldsskólanáms til stúdentsprófs í þrjú ár. Umfang þeirrar úttektar hefur ekki verið ákveðið en miðað er við að verkefnisáætlun verði tilbúin fyrir jól. 20. nóvember 2018 19:30
„Það erum við sem þurfum að gefa afsláttinn“ Þrátt fyrir að framhaldsskóli hafi verið styttur í þrjú ár gefa margir nemendur sér lengri tíma til að ljúka námi. Nemandi í FG segir hættulega mikið álag vera á nemendur og hefur sent menntamálaráðherra bréf til að lýsa óánægju sinni. 6. nóvember 2018 20:30
Gríðarleg aukning í umsóknum um nám í háskólum landsins Mikil fjölgun varð milli ára á umsóknum um nám í háskólunum. Þetta skýrist aðallega af breytingum á fyrirkomulagi stúdentsprófa þar sem flestir framhaldsskólar útskrifa tvöfalda árganga í vor. Háskólarektor segir sérstakt ánægjuefni að umsóknum um grunnnám í leikskólakennarafræði fjölgi um 60 prósent. 8. júní 2018 07:00