Ungt fólk – höfum áhrif! Ungt stuðningsfólk Áslaugar Örnu skrifar 28. maí 2021 09:01 Nú stendur yfir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Í síðasta prófkjöri sama flokks voru kjósendur 35 ára og yngri aðeins 20 prósent þeirra sem mættu á kjörstað. Þetta er sláandi staðreynd í ljósi þess að prófkjör eru í grunninn persónukjör innan flokka þar sem fólk sem tekur þátt getur haft bein áhrif á það hverjir það eru sem veljast inn á þing. Við erum ungt fólk sem ætlum að styðja Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur í fyrsta sætið – fyrirmynd og öflugan talsmann frelsis, frjálslyndis, mannréttinda og manneskju sem skilur nútímann. Sjálfstæðisflokkurinn verður að hlusta á rödd þeirra kynslóða sem nú eru að koma upp ætli hann sér áfram að eiga erindi við ungt fólk og vera sú breiðfylking sem hann segist vera. Ungt fólk verður að sama skapi að taka þátt í stjórnmálastarfi svo sjónarmið þeirra heyrist hátt og snjallt. Án ungs fólks eiga stjórnmálin nefnilega enga framtíð. Mjög einfalt er að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Annars vegar þarf að skrá sig í flokkinn (sem hægt er að gera hér) og hins vegar þarf sá sem mætir að kjósa að hafa náð 15 ára aldri. Áslaug Arna hefur unnið að því hörðum höndum undanfarin ár að gera samfélagið betra, einfaldara og réttlátara svo sem flestir geti gert gott úr sínu lífi. Hennar sýn er sú að stjórnmálamenn eigi að gæta þess að stjórnmálin flæki ekki líf fólks líkt og hún hefur lagt áherslu á með því að stórefla rafræn samskipti milli fólks og stofnana. Hún er staðráðin í að nýta krafta sína til þess að vinna að umbótum sem samfélagið þarf á að halda í breyttum heimi, líkt og stafrænu ökuskírteinin eru skýrt dæmi um. Hún er fylgin sér og harðdugleg eins og best sést á undangengnum tæpum tveimur árum í dómsmálaráðuneytinu þar sem hún hefur leitt stórfelldar breytingar á málaflokkum sem brenna á undirrituðum. Til að mynda hefur Áslaug Arna lagt sérstaka áherslu á ofbeldismál og meðferð kynferðisafbrota í kerfinu, meðal annars með því að koma stafrænum kynferðisbrotum inn í hegningarlög og banna sendingu á kynferðislegu efni án samþykkis. Þá má nefna þá nýlegu breytingu að börn geti verið skráð með tvö heimili - sem er einfaldlega veruleiki margra fjölskyldna í nútímanum. Hún hefur beitt sér fyrir frekara frjálsræði í verslun með áfengi og fyrir frelsi fólks til að velja börnum sínum nöfn. Þó við látum okkur nægja að nefna aðeins nokkur dæmi í þessari grein er hægt að kynna sér frambjóðandann betur hér. Við erum ungt fólk og við ætlum að hafa áhrif. Sjálfstæðisflokkurinn á sér bjarta framtíð með leiðtoga á borð við Áslaugu Örnu. Agnes Gunnarsdóttir Alexandra Magnúsdóttir Andrea Gunnarsdóttir Anna Birna Kjartansdóttir Arna Steinunn Mathiesen Ágústa Tryggvadóttir Árni Svavar Johnsen Ásdís Alís Kristjánsdóttir Ástgeir Ólafsson Baldvin Þór Hannesson Birgitta Líf Björnsdóttir Birkir Ólafsson Birkir Snær Brynleifsson Birta Karen Tryggvadóttir Bjarki Már Magnússon Bjarki Þór Guðnason Bjarni Kristbjörnsson Bjarni Pétur Marel Jónasson Bryndís Björt Hilmarsdóttir Bryndís Gunnarsdóttir Bryndís Marta Auðunsdóttir Dagur Steinn Sveinbjörnsson Daníel Þorri Hauksson Davíð Snær Jónsson Dóra Tómasdóttir Drífa Lýðsdóttir Elísabet Sara Gísladóttir Emilíanna Rut Mikaelsdóttir Emma Íren Egilsdóttir Eydis Arna Líndal Eydís Helga Viðarsdóttir Friðgeir Óskarsson Guðjón Gunnar Valtýsson Thors Guðjón Máni Blöndal Guðrún Eydís Arnarsdóttir Halla Sigrún Mathiesen Halldór Benedikt Haraldsson Hanna Guðrún Sverrisdóttir Helena Guðmundsdóttir Helena Kristín Brynjólfsdóttir Helga Þóra Bjarnadóttir Hilmar Freyr Kristinsson Hjörtur Guðmundsson Hlynur Karl Viðarsson Hugrún Elvarsdóttir Hörður Guðmundsson Ingvar Smári Birgisson Ingveldur Anna Sigurðardóttir Ísak Helgi Tryggvason Ísak Leon Jarþrúður Pálmey Freysdóttir Jenný Rebekka Jónsdóttir Jón Axel Svavarsson Jón Jökull Sigurjónsson Jónína Birgisdóttir Kamilla Farajsdóttir Karen Nordquist Karítas Ólafsdóttir Karólína Ólafsdóttir Katarina Tina Nikolic Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir Bachmann Katrín Sigurðardóttir Kári Freyr Kristinsson Kjartan Sigurðsson Kristín Lára Torfadóttir Kristín Unnur Mathiesen Kristófer Matthías Kristjánsson Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir Lovísa Ólafsdóttir Magnús Orri Fjölmarsson Magnús Sigurbjörnsson Magnús Örn Gunnarsson Mikael Geir Baldursson Nanna Kristín Tryggvadóttir Ólafur Hrafn Kjartansson Ólafur Rúnar Kaaber Ragnar Snæland Ragnheiður Ugla Ocares Gautsdóttir Rakel Diljá Tryggvadóttir Reynir Páll Sigurðsson Rósa Kristinsdottir Salka Sigmarsdóttir Selma Guðjónsdóttir Sigurður Einarsson Sigurgeir Jónasson Sóldís Birta Reynisdóttir Sóley Friðrika Hauksdóttir Maack Sólveig Björnsdóttir Steinunn Sveinsdóttir Sylvía Briem Friðjónsdóttir Sæunn Nanna Ægisdóttir Sævar Már Gestsson Tinna Alicia Kemp Unnur Sif Hjartardóttir Úlfur Þór Andrason Valdimar Freyr Freysson Valdís Inga Magnúsdóttir Veronika Steinunn Magnúsdóttir Vífill Harðarson Viktor Pétur Finnsson Þóra Þórðardóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Kosningar 2021 Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavíkurkjördæmi norður Reykjavíkurkjördæmi suður Mest lesið Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar