Ómar Ingi fór á kostum enn eina ferðina Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. maí 2021 19:01 Ómar Ingi skoraði níu mörk í dag. Hann er nú kominn með 197 mörk á tímabilinu og er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. Uwe Anspach/Getty Ómar Ingi Magnússon og félagar hans í Magdeburg unnu stórsigur þegar þeir heimsóttu Minden í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Ómar Ingi var markahæsti maður vallarins með níu mörk, en lokatölur urðu 35-25 Magdeburg í vil.
Ómar Ingi hafði hægt um sig í fyrri hálfleik og skoraði aðeins þrjú mörk. Leikurinn var nokkuð jafn og staðan 16-15 fyrir Magdeburg þegar flautað var til hálfleiks. Gestirinir tóku þó öll völd í seinni hálfleik og náðu fljótlega fimm marka forskoti. Þeir tóku fótinn aldrei af bensígjöfinni og unnu að lokum tíu marka sigur. Magdeburg er í þriðja sæti deildarinnar með 34 stig, jafn mörg og Flensburg sem situr í öðru sæti. Flensburg hefur þó spilað einum leik minna. Viggó Kristjánsson og félagar hans í Stuttgart heimsóttu Hannover-Burgdorf einnig í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Stuttgart náði fjögurra marka forystu um miðjan fyrri hálfleikinn, en heimamenn náðu að snúa taflinu sér í hag fyrir hlé og fóru með 14-11 forystu inn í hálfleikinn. Viggó og félagar tóku gott áhlaup á lokamínútum leiksins. Þeir skoruðu seinasta mark leiksins sem tryggði þeim jafntefli. Lokatölur 23-23, og Stuttgart situr enn í 14.sæti deildarinnar, stigi á eftir Hannover-Burgdorf.
Þýski handboltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira