Handbolti

Sá besti ó­vænt orðaður við brott­för

Aron Guðmundsson skrifar
Emil Nielsen hér í leik á stórmóti með danska landsliðinu
Emil Nielsen hér í leik á stórmóti með danska landsliðinu Vísir/Getty

Emil Nielsen, besti handboltamarkvörður í heimi, er orðaður við þýska liðið Flensburg en ekki er langt síðan hann gekk til liðs við Vézprem í Ungverjalandi.

Það er Bild í Þýskalandi sem greinir frá en Nielsen hefur undanfarin ár verið í sérflokki þegar kemur að markvörðum í handboltanum og raðað inn verðlaunum með félagsliðum sínum sem og danska landsliðinu.

Eftir fjögurra ára sigursæla dvöl hjá Barcelona gekk Nielsen til liðs við Vezprém fyrr á þessu ári. Hann skrifaði undir þriggja ára samning í Ungverjalandi en nú er óvissa uppi varðandi það hvort sá samningur muni renna sitt skeið.

Fyrirhugaðar breytingar á skattalögum í Ungverjalandi eru sagðar spila stóran þátt í þessum mögulegu félagsskiptum og gætu gert liðum í Ungverjalandi erfiðara um vik að laða til sín stórstjörnur í handboltaheiminum.

Íslenski landsliðsmaðurinn Arnar Freyr Arnarsson er leikmaður Flensburg og þá mun Viggó Kristjánsson ganga í raðir félagsins á næsta tímabili.

Flensburg ætlar sér stóra hluti á næstu árum og hefur til að mynda einnig tryggt sér þjónustu Costa-bræðranna frá Portúgal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×