Sævar Þór varð fyrir kynferðisofbeldi átta ára gamall og glímdi í kjölfarið við áfallastreitu og áfengisvandamál frá táningsaldri.
„Unglingsstúlka fær mig til að fara inn í skemmu og þar eru tveir yngri menn. Ég átta mig ekki alveg á aldrinum en líklega á aldrinum fimmtán til tuttugu ára. Þeir misnota mig sem barn. Það er svo skrítið að ég man margt frá þessu tímabili, ég man birtuna, ég man umhverfið, ég man aðstæðurnar og ég man lyktina. Þetta var ég búinn að grafa niður.“
Í dag er hann giftur faðir og rekur lögmannsstofu ásamt eiginmanni sínum, Lárusi Sigurði Lárussyni. Þeir skrifuðu saman bók um áföll og æsku Sævars, en bókin ber titilinn Barnið í garðinum.
„Ég gat ekki skrifað þessa sögu án þess að segja hana eins og hún er. Ég hlífi engum. Ég hlífi ekki sjálfum mér, ég hlífi ekki fólkinu mínu og ég bara segi hlutina eins og þeir eru.“
Í bókinni segir hann frá erfiðum heimilisaðstæðum í æsku, drykkju, neyslu og framhjáhaldi. Sævar hefur í kjölfar útgáfu bókarinnar misst sambandið við nána fjölskyldumeðlimi.
„Ég hef misst tengsl við foreldra mína, systkini og frændfólk og það er mér afskaplega þungbært og erfitt en þetta er mín frásögn og mín saga. Þau hafa sína sögu og sínar frásagnir. Lengi vel var það ekki viðurkennt að ég hefði orðið fyrir kynferðisbroti en ég heyri það þó nú í fyrsta skipti í mínu lífi að fólk er tilbúið að viðurkenna að ég hafi orðið fyrir einhverju átta ára gamall.“
Sævar segir að hann elski fjölskylduna en ef hann eigi að velja milli þeirra og síns eigin bata, verði hann að taka afstöðu með sjálfum sér og velja að vera til staðar fyrir son sinn.
Drykkja, neysla og afneitun
Sævar opnaði sig ekki um misnotkunina fyrr en hann var að vinna að svokölluðu stuðningsfulltrúa máli í Reykjavík, sem lögmaður þolendanna.
„Ég var búinn að grafa yfir þetta í mörg ár bæði með drykkju, neyslu og afneitun sem var farið að hafa virkileg áhrif á mig.“
Hann átti í miklum erfiðleikum með tengslamyndun eftir áfallið og tók langan tíma að vinna úr afleiðingum misnotkunarinnar.
„Ég var ekki barn eftir að þetta gerðist. Ég var eitthvað annað.“
Auðveldara að fela sig
Sævar segist hafa lent í ýmsum persónulegum erfiðleikum með sjálfan sig þegar hann varð eldri. Þunglyndi og mikil áfengisdrykkja kom svo í kjölfarið en Sævar drakk til að deyfa tilfinningar sínar.
„Þegar þú ferð í drykkjuna þá ertu annar karakter og þá getur þú falið þig betur.“
Sævar segist hafa byrjað að drekka í grunnskóla og með árunum varð hún í raun algjörlega stjórnlaus.
„Ég man eftir tilvikum þar sem ég drakk í vinnu ótæpilega, eftir vinnu. Ég vann mikið.“
Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.