Ekki lengur jarðsett á eftirsóttasta tímanum vegna styttingar vinnuvikunnar Atli Ísleifsson skrifar 4. júní 2021 07:37 Af rúmlega fimm hundruð útförum í Reykjavík á síðasta ári voru 150 þeirra á föstudögum. Vísir/Vilhelm Ekki verður lengur jarðsett í Reykjavík síðdegis á föstudögum, sem hefur verið eftirsóttasti tími vikunnar til útfara, vegna styttingar vinnuvikunnar hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur.
Fréttablaðið hefur í dag eftir prestum og fulltrúa Félags útfararstjóra að ekkert samráð hafi verið haft við þá um þá þjónustuskerðingu sem þessi innleiðing styttingar vinnuvikunnar hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur muni hafa í för með sér, en af rúmlega fimm hundruð útförum í Reykjavík á síðasta ári voru 150 þeirra á föstudögum. Vísir greindi frá fyrirætlunum um áhrif styttingar vinnuvikunnar á jarðsetningar í apríl síðastliðinn. Rúnar Geirmundsson, formaður Félags íslenskra útfararstjóra, segir við Fréttablaðið að félaginu hafi borist bréf með mánaðarfyrirvara um að útfærslan yrði með þessum hætti. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða prófastsdæmanna, segir að skoðað hafi verið að fara aðra leið en það hafi verið „eindreginn“ vilji starfsmanna Kirkjugarða Reykjavíkur að fara þessa leið. Þá hafi samband verið haft við presta og útfararstjóra, og einungis fjórir prestar sent inn kvörtun. Eftir breytingu verða engar útfarir með jarðsetningu eftir hádegi á föstudögum, heldur verður aðeins í boði að vera með útför og jarðsetningu ef athöfnin hefst klukkan 10 að morgni.
Kirkjugarðar Þjóðkirkjan Stytting vinnuvikunnar Vinnumarkaður Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Sjá meira