Leita á Hornströndum vegna mögulegra ummerkja um ísbjörn Kristín Ólafsdóttir skrifar 23. júní 2021 02:26 Þekkt er að ísbirnir gangi á land á Hornströndum. Myndin sýnir þó ísbjörn á Svalbarða. Vísir/Getty Leit stendur nú yfir á Hornströndum eftir að gönguhópur tilkynnti lögreglu á Vestfjörðum um ummerki eftir mögulegan ísbjörn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu á Vestfjörðum á öðrum tímanum í nótt.
Fram kemur í tilkynningu að gönguhópurinn hafi tilkynnt um ummerki eftir „óþekkt dýr, mögulega hvítabjörn“ í gærkvöldi. Þegar hafi verið óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem fór ásamt tveimur lögreglumönnum í eftirlitsflug yfir svæðið. Enginn hvítabjörn hafi verið sjáanlegur „en við nánari athugun á vettvangi er ekki útilokað að ummerki frá hvítabirni sé að ræða,“ segir í tilkynningu. Fólk og ferðaþjónustuaðilar á svæðinu hafi þegar verið látnir vita af leitinni, sem haldið verði áfram fram á nótt „og eftir sem þurfa þykir“. „Lögreglan ráðleggur þeim sem eru á svæðinu að sýna varúð og biður þá sem höfðu stefnt á svæðið að bíða þar til gengið hefur verið úr skugga um að enginn hvítabjörn sé á svæðinu,“ segir í tilkynningu lögreglu. Þekkt er að hvítabirnir gangi á land á Hornströndum. Þannig var til að mynda ísbjörn felldur í Hornvík í maí 2011 eftir að hafa sést á vappi í fjörunni í Hælavík.
Dýr Hornstrandir Ísafjarðarbær Landhelgisgæslan Lögreglumál Ísbirnir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira