Ertu á leið norður í sumar? Ef þú vilt vera í miðbæ Akureyrar í nálægð við helstu kaffihús, veitingastaði og búðir þá bjóða Acco Luxury Apartments vel búnar og fallegar íbúðir í Skipagötu nálægt Ráðhústorgi.
„Einhver sagði í langtímaspá að sumarið yrði fyrir norðan þetta árið. Það er svo sem ekkert nýtt,“ segir Helga Björk Eiríksdóttir, eigandi Acco á Akureyri. „Það er miklu skemmtilegra að taka á móti gestum í góðu veðri en íbúðir okkar eru vel búnar þannig að það fer vel um fólk hvernig sem veðrið lætur.“

Íbúðirnar eru rúmgóðar og fallegar. Þær henta fjölskyldum og vinahópum vel. Fullbúið eldhús og þvottavél er í hverri íbúð, þurrkarar í sumum þeirra.
„Nú í vor bættist í úrval íbúða þegar við breyttum gistiheimili okkar í þrjár íbúðir sem eru í sama húsi og Cafe Berlín. Það er afar vinsæll og góður veitingastaður sem reiðir fram vel útilátinn morgunverð og hádegisverð. Við eigum von á miklu lífi á Akureyri í sumar enda er svo margt skemmtilegt í boði hér á Norðurlandi,“ segir Helga Björk.

Það er auðvelt að skipuleggja frábæra daga á Norðurlandi. Nágrenni Akureyrar býður upp á marga áhugaverða staði, fjölbreytta afþreyingu og náttúruperlur sem gaman er að skoða.

Það er lítið mál að gera sér dagsferðir frá Akureyri, til dæmis í Mývatnssveit og til Húsavíkur, skoða Goðafoss og Dettifoss og þá er Ásbyrgi einstök náttúruperla. Dalvík, Hrísey og Siglufjörður eru í þægilegri fjarlægð og ekki svo langt til Hofsóss.
Sundferðir tilheyra ferðalögum og sundlaug Akureyrar er vinsæl en laugarnar á Dalvík, í Eyjafjarðarsveit og við Þelamörk eru mjög skemmtilegar líka. Þá er gaman að heimsækja hin ýmsu böð í nágrenninu, Bjórböðin á Árskógsströnd, Jarðböðin á Mývatni og Sjóböðin á Húsavík svo dæmi séu nefnd.

Nánari upplýsingar um Acco Luxury Apartments er að finna á www.acco.is. Hægt er að bóka á vefnum en það má jafnframt senda fyrirspurnir á netfangið info@acco.is eða hringja í síma 547 2226.