Á vef Ferðaeyjunnar er einnig hægt að finna ýmsa afþreyingu, til dæmis fjórhjólaferðir, þyrluferðir, kajakferðir, spa og fleira.
Nú þegar ferðasumarið á Íslandi farið af stað vill Ferðaeyjan mæla með fjölskylduvænum hótelum sem fólk er hvatt til að kynna sér nánar.
Stracta Hótel

Ferðaeyjan fékk það tækifæri að upplifa eina nótt í einni af fjölskylduíbúðum hótelsins sem henta mjög vel litlum hópum eða fjölskyldum sem vilja vera út af fyrir sig.
Hægt er að bóka fjölskylduíbúð með sér heitum potti þar sem hægt er að slaka á eða fyrir börnin að busla í.
Fjölskylduíbúðirnar eru með ísskáp, eldavél og öðrum helstu tækjum og áhöldum sem til þarf, til einfaldrar matargerðar. Svefnsófi er í stofu sem má búa um svo þar geti gist einn fullorðinn eða tvö börn.
Á jarðhæð Stracta Hótels er Bistro (bar/veitingastaður) sem býður upp á ljúffenga rétti og sér barnamatseðil. Á efri hæð hótelsins er morgunarverðarsalurinn þar sem boðið er upp á fjölbreytt morgunverðarhlaðborð.
Í bakgarði hótelsins er stór verönd þar sem hægt er að setjast niður og slaka á með morgun kaffibollann eða kvölddrykkinn í hönd. Einnig í bakgarðinum eru tveir heitir pottar og sána sem gestir hótelsins hafa aðgang að. Um er ræða hótel sem hentar vel fyrir fjölskyldur, pör og einstaklinga.
Stracta Hótel er nú með í gangi frábær tilboð á gistingu, sjá nánar hér.
Hótel Dyrhólaey

Frá Hótel Dyrhólaey er stutt er í allar helstu náttúruperlur Suðurlands. Hótelið er þekkt fyrir glæsilegt útsýni yfir Mýrdalinn og Dyrhólaey.
Á hótelinu eru um 150 herbergi og hentar það vel fyrir stóra hópa og viðburðarhald t.d. árshátíðir og jólahlaðborð. Ferðaeyjan dvaldi í herbergi sem rúmar 3-4 í gistingu og því hentar hótelið einnig fyrir barnafjölskyldur.
Veitingasalurinn á hótelinu er stór og var maturinn á hótelinu einstaklega bragðgóður. Við veitingasalinn er bar sem þykir skemmtilega hannaður og nýttu barþjónarnir tækifærið og sýndu snilli sína í kokteilgerð. Ferðaeyjan fékk frábæra þjónustu á hótelinu og var mjög skemmtilegt að sjá hvað starfsfólkið gaf sér alltaf tíma til að spjalla við gesti hótelsins.
Hægt er að skoða sumartilboð hótelsins á gistingu hér.
Hótel Framtíð

Á Hótel Framtíð á Djúpavogi er að finna 42 herbergi, einnig er hægt að bóka gistingu í sumarhúsum eða íbúðum sem eru aðeins í 5 mín göngufjarlægð frá hótelinu.
Ferðaeyjan dvaldi eina nótt í einni af fjölskylduíbúðum hótelsins en í þeirri íbúð er gistipláss fyrir 5 manns. Íbúðin skiptist í hjónaherbergi, aukaherbergi, stofu og eldhús með ísskáp og eldavél ásamt öllum helstu áhöldum fyrir matargerð.
Á Hótel Framtíð er afar hlýlegur veitingastaður með frábæru útsýni yfir höfnina. Veitingastaðurinn býður upp ljúffenga rétti þar sem lagt er mikil áhersla á vandaða matargerð.
Meðal fallegra náttúruperla og útivistarsvæða í nágrenninu eru Búlandstindur, Berufjörður og Svörtu Sandarnir við Djúpavog, þar af leiðandi er nóg fyrir augun að sjá fyrir gesti hótelsins.