Veður

Gular við­varanir norð­vestan­til en að 26 stiga hiti fyrir austan

Atli Ísleifsson skrifar
Gæðunum er misskipt í veðrinu í dag.
Gæðunum er misskipt í veðrinu í dag. Veðurstofan

Allhvasst verður á norðvestanverðu landinu í dag og einnig á norðaustanverðu landinu á morgun – sunnan og suðvestan tíu til átján metrar á sekúndu og hviður um þrjátíu metrar á sekúndu í vindstrengjum við fjöll.

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Breiðafjörð, Vestfirði og Strandir og Norðurland vestra, en vindur sem þessi gæti verið varasamur fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi.

Viðvaranirnar taka gildi klukkan 10 fyrir Breiðafjörð, á hádegi á Vestfjörðum og klukkan 14 á Ströndum og Norðurlandi vestra og gilda þær allar til miðnættis.

Spáð er rigningu með köflum norðantil fram að hádegi en bjartviðri seinnipartinn.

„Rigning eða súld öðru hverju vestantil. Hiti 15 til 26 stig víða austantil, hlýjast í innsveitum austanlands og má búast við hæstum hita í grennd við Egilsstaði. Hiti 7 til 14 vestantil.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Suðvestan átt, víða 5-13, en hvassara á Ströndum. Léttskýjað A-lands, en skýjað og súld með köflum V-til og þokuloft. Hiti 10 til 24 stig, hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi.

Á fimmtudag: Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt og skýjað á V-verðu landinu, en bjart veður eystra. Hiti víða 12 til 20 stig.

Á föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag: Breytileg átt eða hafgola og bjart með köflum, en sums staðar þokuloft við ströndina og líkur á stöku síðdegisskúrum. Áfram hlýtt í veðri.


Tengdar fréttir

Heiðar­leg at­laga að Ís­lands­metinu í hita í kortunum

Það stefnir í steikjandi hita á Austfjörðum á morgun og gæti hitinn náð 29 stigum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur greinir frá þessu á síðu sinni Bliku og lýsir því sem heiðarleg atlaga að íslenska hitametinu sé í farvatninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×