Þetta er mögnuð á sem er engu að síður svolítið dyntótt enda á hún það til að fara á yfirfall á versta tíma í ágúst þegar veiðin er að ná hámarki en þegar yfirfalli seinkar fram í september eða lok ágúst eins og stundum vill gerast þá er þetta eitt mest spennandi veiðisvæði landsins.
Stórlaxar liggja þarna víða og í gær tók Nils Folmer einn af þeim en það var 102 sm nýgengin lax sem er einn af þeim glæsilegri sem hefur veiðst þar síðustu ár. Það verður spennandi að sjá hvernig Jökla verður í sumar.