Innlent

Fjalar nýr upp­lýsinga­full­trúi dóms­mála­ráðu­neytisins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjalar Sigurðarson er nýr upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins.
Fjalar Sigurðarson er nýr upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins.

Fjalar Sigurðarson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi í dómsmálaráðuneytinu. Fjalar tekur við starfinu af Hafliða Helgasyni sem gegndi því í tæp þrjú ár. 34 sóttu um starfið.

Kjarninn greinir frá ráðningunni. Fjalar gegndi síðast starfi markaðsstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar sem lögð var niður þann 1. júlí. 

Fjalar lauk MBA gráðu frá Háskólanum í Reykja­vík árið 2010 og hef­ur verið starf­andi sem ráðgjafi í markaðs- og kynn­ing­ar­mál­um um ára­bil. Fjal­ar hef­ur um­tals­verða reynslu af markaðsmá­l­um og úr tækni­geir­an­um og var á meðal frum­kvöðla í hag­nýt­ingu In­ter­nets­ins í viðskipt­um hér­lend­is.

Hann á einnig að baki fjöl­breytt­an fer­il í ýms­um fjöl­miðlum, svo sem hjá Ríkisútvarpinu, Stöð 2 og Skjá einum.

Skal veita fjölmiðlum og almenningi upplýsingar

34 sóttu um starfið en í auglýsingu kom fram að viðkomandi myndi bera ábyrgð á fjölmiðlatengslum dómsmálaráðuneytisins og ritstýrði vefjum þess.

„Viðkomandi fylgist með fréttaflutningi sem tengist starfsemi ráðuneytisins og ráðherra og veitir fjölmiðlum og almenningi upplýsingar. Leitað er að einstaklingi með áhuga á að móta starfið með starfsmönnum ráðuneytisins. Um fullt starf er að ræða.“

Meðal hæfniskrafna eru háskólanám sem nýtist í starfinu, og er meistaragráða sögð æskileg. Þá er reynsla af blaða/fréttamennsku talin vera kostur í starfinu, sem og þekking á málefnasviðum ráðuneytisins.

Hafliði Helgason upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins.

Þegar Hafliði var ráðinn í starfið sumarið 2018 hafði ráðuneytið auglýst eftir umsækjendum í mars sama ár. Hópur umsækjenda sótti þá um starfið, sem var auglýst aftur í apríl, þá með útvíkkuðum hæfnisskilyrðum. Þá var Sigríður Andersen dómsmálaráðherra. Ráðuneytið bar því fyrir sig að það teldi rétt að víkka út skilyrðin og gera ítarlega grein fyrir því hvað fælist í starfinu og freista þess þannig að hafa úr stærri hóp að velja.

Í upphafi sóttu 25 um starfið en svo var starfið auglýst aftur. Tveir drógu umsókn sína til baka og stóðu því eftir 23 umsækjendur. 23 bættust við hópinn eftir síðari auglýsingu og voru því umsækjendur um starfið 46. Hafliði var á meðal þeirra sem sóttu um starfið eftir seinni auglýsinguna.

Nú sóttu 34 um starfið, þeirra á meðal reyndar fjölmiðlakonur á borð við Kristínu Þorsteinsdóttur, fyrrverandi ritstjóra og útgefanda hjá 365 miðlum, og Lilju Katrínu Gunnarsdóttur, fyrrverandi ritstjóra DV.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×