Þegar sigur Joes Biden, frambjóðanda Demókrataflokksins, í forsetakosningunum í nóvember varð ljós slengdi Trump fram stoðlausum ásökunum um að stórfelld svik hefðu kostað hann sigurinn. Trump hafði þá um margra mánaða skeið alið á tortryggni í garð póst- og utankjörfundaratkvæða sem mörg ríki liðkuðu sérstaklega fyrir til að draga úr smithættu í kórónuveirufaraldrinum.
Stuðningsmenn Trump í fjölda ríkja þar sem hann tapaði naumlega höfðuðu aragrúa dómsmála með vafasömum ásökunum um svik, misferli og misræmi í kosningunum. Þeir voru nær alls staðar gerðir afturreka með þau mál enda voru engar haldbærar sannanir fyrir þeim ásökunum til staðar.
Hópur lögmanna hliðhollur Trump höfðaði mál fyrir hönd sex repúblikana til að snúa við úrslitunum í Michigan. Í stefnunni hélt hann því fram að svik hefðu einkennt sigur Biden og bað hópurinn dómarann um að lýsa Trump sigurvegara í staðinn. Dómarinn hafnaði kröfunni og sagði stefnendurna aðeins hafa lagt fram vangaveltur og tilbúning máli sínu til stuðnings um að atkvæði sem voru greidd Trump hefðu verið eyðilögð, þeim hent eða breytt.
Stoðlausar ásakanir um stórfelld svik
Lögmennirnir sjúpa nú seyðið af því að hafa lagt stefnuna fram. Alríkisdómarinn í Michigan sem hafnaði stefnunni komst að þeirri niðurstöðu í gær að málið sem lögmennirnir höfðuðu hefði falið í sér „sögulega og djúpstæða misnotkun á réttarkerfinu“.
Lögmennirnir, þar á meðal Sidney Powell og L. Lin Wood, sem voru framarlega í flokki stuðningsmanna Trump í slagnum eftir kosningarnar, hafi lagt fram fullyrðingar fyrir dómi sem voru ekki studdar sönnunargögnum og að þeir hafi ekki gert þá áreiðanleikakönnun á fullyrðingum sínum sem lög gera ráð fyrir áður en þeir settu fram ásakanir um stórfelld kosningasvik í Michigan.
„Pólitískar ásakanir, staðhæfingar og vafasamar leikaðferðir sem lögmenn stefnanda beittu kunna að njóta verndar fyrsta viðauka [stjórnarskrár Bandaríkjanna um tjáningarfrelsi] þegar þær eru birtar á Twitter, deilt á Telegram eða endurteknar í sjónvarpi. Dómstólar þjóðarinnar eru aftur á móti til þess að taka fyrir raunverulegar málsástæður,“ sagði í áliti Lindu V. Parker, alríkisumdæmisdómara.

Send í endurmenntun og vísað til aganefnda
Dómarinn fyrirskipaði að lögmennirnir skyldu greiða málskostnað Detroit-borgar og Michigan-ríkis við málaferlin og að þeir skyldu sækja endurmenntunarnámskeið í lögfræði. Vísaði dómarinn máli lögmannanna jafnframt til aganefnda lögmanna í þeim ríkjum þar sem þeir hafa lögmannsréttindi. Þær nefndir gætu hafið rannsókn sem gæti á endanum leitt til þess að þeir væru sviptir lögmannsréttindum, að sögn Washington Post.
Powell og Wood eru ekki fyrstu stuðningsmenn Trump sem hafa fengið ákúrur frá dómurum vegna framferðis síns eftir kosningar. Rudy Giuliani, persónlegur lögmaður Trump, var sviptur lögmannsréttindum í New York í sumar fyrir að leggja fram „sannanlega rangar og misvísandi fullyrðingar“ sem væru ógn við almenning.
Í Colorado refsaði dómari tveimur lögmönnum sem hugðust leggja fram hópmálsókn fyrir hönd allra Bandaríkjamanna þar sem þeir héldu því fram að meiriháttar samsæri hafi átt sér stað um að stela kosningunum frá Trump.