Innlent

Víða von á vætu í dag

Samúel Karl Ólason skrifar
Á morgun er sáð suðlægri eða breytilegri átt 3-10 og rigningu eða skúrum víða um land.
Á morgun er sáð suðlægri eða breytilegri átt 3-10 og rigningu eða skúrum víða um land. Vísir/Vilhelm

Búast má við suðlægum áttum og vætu á landinu í dag og á morgun. Lengst af verður þó þurrt norðaustanlands og tiltölulega heitt. Þá er útlit fyrir að kólna muni fyrir norðan.

Á vef Veðurstofu Íslands er spáð suðvestan 5-13 metrum á sekúndu í dag með skúrum. Austanlands er spáð 8-15 m/s og rigningu.

Á morgun er sáð suðlægri eða breytilegri átt 3-10 og rigningu eða skúrum víða um land. Þó á að vera þurrt norðaustanlands og hiti 9 til 17 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og víða dálitlar skúrir. Hiti 6 til 13 stig, mildast sunnan heiða.

Á miðvikudag:

Suðvestan 3-10 m/s og stöku skúrir S- og V-lands, en yfirleitt bjart á NA- og A-landi. Hiti 8 til 14 stig yfir daginn.

Á fimmtudag:

Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en lítilsháttar væta V-til á landinu. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:

Vestlæg átt og þurrt að kalla, en rigning með köflum A-til. Heldur kólnandi.

Á laugardag:

Suðvestlæg átt og stöku skúrir, en léttskýjað um landið NA-vert. Hiti 5 til 10 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×