Veður

Víða bjart en skýjað með köflum suð­vestan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Hagatorgi. Hiti á landinu verður sjö til fimmtán stig yfir daginn.
Frá Hagatorgi. Hiti á landinu verður sjö til fimmtán stig yfir daginn. Vísir/Vilhelm

Reikna má með suðvestlægri eða breytilegri átt í dag með golu eða kalda víða og björtu veðri, en skýjuðu með köflum um landið suðvestanvert.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að síðdegis þykkni upp vestantil á landinu og þar sem búast megi við lítilsháttar rigningu í kvöld og nótt. Hiti sjö til fimmtán stig yfir daginn.

Áfram fremur hægur vindur og dálítil væta með köflum á morgun, en yfirleitt þurrt og bjart suðaustantil á landinu og á Vestfjörðum.

Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Skýjað með köflum og sums staðar dálítil væta, en léttskýjað SA-til. Hiti 7 til 14 stig yfir daginn.

Á laugardag: Hæg breytileg átt. Skýjað með köflum og stöku skúrir S- og A-til, en þurrt og bjart um landið NV-vert. Hiti 5 til 10 stig að deginum.

Á sunnudag: Gengur í suðaustan 13-20 með talsverðri rigningu S- og V-lands, en lengst af hægari og úrkomuminna NA-til. Hlýnandi.

Á mánudag: Suðlæg átt og rigning eða skúrir, en styttir upp N- og A-lands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast NA-til.

Á þriðjudag: Suðvestanátt og skúrir, en þurrt um landið A-vert. Hiti 8 til 14 stig.

Á miðvikudag: Útlit fyrir suðaustanátt með rigningu S- og V-lands. Hlýtt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×