Hrækti á börn og lögreglumann Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. október 2021 06:15 Maðurinn vildi ekki gefa upp nafn eða kennitölu og hrækti á lögreglumann. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í Laugardalnum um kvöldmatarleytið í gær. Tilkynning hafði borist um að maðurinn, sem var ölvaður, hefði verið að áreita börn og hrækja að þeim.
Þegar lögregla kom á vettvang vildi maðurinn ekki gefa upp nafn eða kennitölu og hrækti á lögreglumann. Var hann því handtekinn og vistaður í fangageymslu. Um svipað leyti barst lögreglu tilkynning um líkamsárás í miðbænum. Þar sagði maður fjóra einstaklinga hafa ráðist á sig og meðal annars sparkað í höfuð sitt en hann hefði náð að hlaupa frá þeim. Maðurinn var í miklu uppnámi og með rispur á olnboga og mjöðm. Málið er í rannsókn. Lögregla hafði einnig afskipti af fólki á heimili í póstnúmerinu 108. Þar voru þrír handteknir grunaðir um vörslu fíkniefna og voru þeir vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknarhagsmuna. Þá barst lögreglu tilkynning í nótt um innbrot í lyfjaverslun í póstnúmerinu 105. Eitt alvarlegt umferðarslys var tilkynnt í gærkvöldi. Þar hafði ökumanni fipast þegar hann var að aka fram úr annarri bifreið á Bláfjallavegi. Ók hann útaf veginum með tvo farþega í bílnum. Ökumaðurinn fann til eymsla í hendi og var annar farþeginn verkjaður í baki, höfði og olnboga. Slösuðu voru fluttir á Landspítala til aðhlynningar en ökumaðurinn og annar farþeginn reyndust aðeins 17 ára og því samband haft við foreldra og barnavernd.
Lögreglumál Reykjavík Kópavogur Mest lesið Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Erlent Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Erlent Fleira en veðrið sem mæli með umdeildum hugmyndum um frestun Innlent „Mér liggur við að segja að það eigi að fara að afgreina fólk“ Innlent Ekki séð stærri hval reka í Víkurfjöru Innlent „Sá sem býður lökustu kjörin á landinu fær augljóslega ekki starfsmann“ Innlent Björgunarsveitir aðstoðað tugi vegfarenda Innlent Á 502 derhúfur og segir það ákveðna bilun Innlent Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Erlent „Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Innlent Fleiri fréttir Fleira en veðrið sem mæli með umdeildum hugmyndum um frestun Björgunarsveitir aðstoðað tugi vegfarenda Á 502 derhúfur og segir það ákveðna bilun „Mér liggur við að segja að það eigi að fara að afgreina fólk“ Ekki séð stærri hval reka í Víkurfjöru Ólga innan Sjálfstæðisflokksins og maður sem á fimm hundruð derhúfur Holtavörðuheiði og Súðavíkurhlíð lokað „Sá sem býður lökustu kjörin á landinu fær augljóslega ekki starfsmann“ „Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Hvað þarf að ræða í Kryddsíldinni? Enginn læknir á vaktinni „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Flugeldasala Landsbjargar hafin Ósætti með mögulega frestun landsfundar og flugeldasala Hvað vildu Íslendingar vita á árinu? Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Ófært í Ísafjarðardjúpi Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Sakamálin sem skóku þjóðina Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Sjá meira