Hógværðin og Halldór Benjamín Flosi Eiríksson skrifar 28. október 2021 19:30 Í vinnumarkaðshagfræði var oft talað um að launastig aðlagist þannig að framboð og eftirspurn vinnuafls nái jafnvægi. Lægri laun hljóti því að ýta undir hærra atvinnustig. Nóbelsverðlaunin þetta árið voru veitt hagfræðingum sem rannsökuðu áhrif hækkunar lágmarkslauna á atvinnustig í Bandaríkjunum og sáu að hækkun lágmarkslauna fjölgaði störfum. Raunveruleikinn var nefnilega flóknari en í gömlum kennslubókum. Þetta endurspeglast líka í gömlum hugmyndum Samtaka Atvinnulífsins um að atvinnuleysistryggingar eigi að vera sem lélegastar til að hægt sé að svelta fólk til vinnu. Þar endurspeglar raunveruleikinn heldur ekki kenningarnar. Í raun er það að koma betur í ljós að góðar atvinnuleysistryggingar hvetja til betri ráðninga og atvinnuþátttöku. Þetta birtist skýrt í Bandaríkjunum þar sem gríðarlegur skortur er á vinnuafli sökum áratuga stöðnunar í launaþróun. Í svargrein sem Halldór Benjamín, framkvæmdastjóri SA, skrifaði hér á Vísi við stuttri grein sem ég skrifaði hér um Nóbelsverðlaun í hagfræði þetta árið telur hann að ég sé að draga of sterkar ályktanir af niðurstöðu Nóbelsnefndarinnar, og alls ekki megi draga þá ályktun að hækkun lágmarkslauna leiði ekki til atvinnuleysis og gagnrýnir síðan einstök atriði í rannsókninni og bendir á aðferðaleg atriði sem hann telur rýra gildi hennar. Minnir það um margt á Steingrím Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sem sagði það í stjórnmálaumræðum þegar við Halldór vorum að alast upp að ,,venjuleg efnahagslögmál giltu ekki á Íslandi“. Þennan tón þekkjum við vel í þjóðfélagsumræðunni að við séum svo sérstök, á Íslandi eigi ekki almennar reglur við eða lögmál sem annars staðar eru viðteknar og viðurkenndar. Félagar Halldórs í Viðskiptaráði náðu fullkomlega utan um þennan hrokafulla þankagang þegar það gaf út yfirlýsingu korter í hrun að Íslendingar hefðu ekkert að sækja eða læra af hinum Norðurlöndunum! Samfélög sem venjulega raða sér í efstu sætin á margvíslegum listum þar sem metin eru gæði samfélaga. Aldrei svigrúm til launahækkana! SA hafa ekki í seinni tíð (og trúlega aldrei) talið að það væri innistæða fyrir launahækkun af neinu tagi. Það er ekki svigrúm í dag, var það ekki 2016 og heldur ekki 2013 þegar raunlaun hröpuðu í kjölfar óðaverðbólgu. Nú er það meira að segja þannig að í kjarasamningi milli SA og SGS eru lægstu taxtarnir svo skammarlega lágir að samið er um sérstaka uppbót til að allir nái lágmarkstekjum. Samt mátti alls ekki hækka lægstu taxtanna, eða fella þá brot – jú út af hverju, ,,hætta væri á að að myndi auka atvinnuleysi“ leiða til ,,fjöldaatvinnuleysis“ og fækka ,,fjölbreyttum byrjunarstörfum“ fyrir þá sem ,,vilja tækifæri til að vinna þó kaupgjaldið sé ekki hátt í fyrstu.“ Umrædd rannsókn sem Nóbelsverðlaunanefndin sá ástæðu til að verðlauna gengst á hólm við þessa gömlu frasa Halldórs og skoðanabræðra hans, þessa gömlu rómantík um ameríska drauminn – um félausa innflytjandann sem stígur á land í Manhattan, vinnur erfið og hættuleg láglaunastörf, er iðin og trúr og fær síðan tækifæri og kemst í álnir og eignast hús í úthverfinu og tvo bíla. Raunveruleiki þeirra sem eru á þessum lágu launum er ekki eins rómantískur, það er allt of líklegt að þau hreykist milli leiguíbúða, börnin þeirra fá ekki að njóta skipulegs tómstundastarfs, heilsan eru verri, eins og margar rannsóknir sína og þau lifa skemmur. Því var maður að vona að verðlaunin að þessu sinni yrði til þess að sumir myndu endurskoða viðteknar hugmyndir og velta fyrir sér í alvöru hvort þessi tugga um að það sé ríku samfélagi eins og hér á landi lífsnauðsýn að halda hluta af þjóðinni í fátækt á skítakaupi. Það virðist ekki hafa gerst hjá Halldóri, heldur metur hann svo að hann viti betur en Nóbelsnefndin, og geti metið hagfræðirannsóknir betur en einhverjir svíjar. Það er út af fyrir sig gleðiefni að sjá hógværð og minnimáttarkennd er ekki farin að plaga Halldór svo merkjanlegt sé. Verkefni okkar hinna er hins vegar að skoða hvernig nýta má rannsóknir í hagfræði og á öðrum sviðum til að skilja betur gangverk vinnumarkaðarins, skipta verðmætunum með réttláttari hætti, tryggja öllum örugga afkomu og hækka lágmarkslaunin. Höfundur er framkvæmdastjóri Starfsgreinasamband Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Flosi Eiríksson Kjaramál Tengdar fréttir Flosi og Nóbelsverðlaunin í hagfræði Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins (SGS) skrifaði nýlega ágætis grein hér á Vísi og óskaði eftir vitrænni umræðu um hvernig mætti bæta hag landsmanna. Það er auðvelt að verða við þeirri bón. 27. október 2021 13:01 Mest lesið Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Kári beislaður við Vaðöldu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Það vantar ekki enn eitt átakið – það vantar aðgerðir Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Framkvæmd skólastefnu fær falleinkunn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Slönguspilið og svikamyllan Teitur Atlason skrifar Skoðun Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Sjá meira
Flosi og Nóbelsverðlaunin í hagfræði Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins (SGS) skrifaði nýlega ágætis grein hér á Vísi og óskaði eftir vitrænni umræðu um hvernig mætti bæta hag landsmanna. Það er auðvelt að verða við þeirri bón. 27. október 2021 13:01
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun