Skoðun

Segðu frá – 112 er líka til staðar á netinu

Sigríður Björk Guðjónsdóttir skrifar

Um þessar mundir er eitt ár liðið frá því að embætti Ríkislögreglustjóra opnaði sérstaka vefgátt 112 gegn ofbeldi. Tilkynningum um heimilisofbeldi til lögreglunnar og barnaverndarnefnda hafði fjölgað mikið í Covid-19 heimsfaraldrinum. Sérstakt aðgerðateymi gegn ofbeldi lagði því til að vefgáttin yrði opnuð til að auðvelda þolendum, gerendum og aðstandendum að leita sér aðstoðar. Heimilisofbeldi og ofbeldi gegn börnum er enda ekki einkamál sem rúmast innan friðhelgi heimilisins, heldur samfélagslegur harmleikur sem við getum ekki liðið.

Opnun vefgáttarinnar fyrir ári síðan var mikilvægt skref í rétta átt og á sama tíma hófst sérstök vitundarvakning þar sem fólk var hvatt til að segja frá ofbeldi og leita aðstoðar. Svo virðist sem vel hafi tekist að vekja athygli á síðunni en að meðaltali 235 einstaklingar hafa heimsótt hana á dag. Þessi fjöldi heimsókna sýnir að þörfin fyrir úrræði sem þetta, til að fræðast um og tilkynna heimilisofbeldi, var mikil. Sérstaka athygli vakti hversu algengt var að þeir sem heimsóttu vefinn væru að leita upplýsinga um andlegt ofbeldi. Einnig eru síður sem sniðnar hafa verið sérstaklega að börnum og ungu fólki mikið lesnar. Af öllum þeim úrræðum sem kynnt eru í vefgáttinni er algengast að fólk kynni sér Heimilisfrið, sem er meðferðarstöð fyrir þau sem beita ofbeldi í nánum samböndum.

Mikil fjölgun tilkynninga

Alls voru 1.049 mál tengd heimilisofbeldi tilkynnt hér á landi í fyrra, um 16% fleiri en meðaltal síðustu þriggja ára þar á undan. Fjöldi tilkynntra mála virðist ætla að haldast þetta mikill en fyrstu níu mánuði þessa árs var tilkynnt um 795 mál tengd heimilisofbeldi, einu máli færra en í á sama tímabili í fyrra þegar þau voru 796.

Tilkynningum til barnaverndarnefnda hefur haldið áfram að fjölga á þessu ári. Á fyrstu 9 mánuðum ársins bárust 9.792 tilkynningar, sem eru 2,3% fleiri tilkynningar en á sama tímabili í fyrra og er aukning um 17% frá sama tímabili árið 2019. Á síðasta ári fjölgaði mest tilkynningum frá ættingjum, nágrönnum og einstaklingum í nærumhverfi barns en fyrstu 9 mánuði þessa árs hefur tilkynningum fjölgað mest frá skólum.

Vefgátt 112 gegn ofbeldi komin til að vera

Vefgátt 112 gegn ofbeldi hjálpaði mörgum að leita sér aðstoðar út úr ofbeldinu í faraldrinum. Því er einkar mikilvægt að vefgátt 112 gegn ofbeldi hefur fengið varanlegan bústað hjá Neyðarlínunni og verður þróuð áfram þar - í takt við nýjustu upplýsingar og þekkingu.

Við þurfum líka áfram að hvetja fólk til að segja frá, því hjálpin er til staðar – hjá 112.

Höfundur er ríkislögreglustjóri.




Skoðun

Sjá meira


×