Um er að ræða metfjölda en aðgerðin er unnin í samvinnu við stóra orkunotendur á borð við Indland, Bretland og Kína. Miklar verðhækkanir hafa sést á eldsneyti á heimsvísu og er verð nú yfir 50% hærra í Bandaríkjunum en það var í fyrra.
„Þrátt fyrir að samanteknar aðgerðir okkar muni ekki leysa vanda hás eldsneytisverðs á einni nóttu, þá mun þetta skipta máli,“ sagði Biden í efnahagsávarpi sem hann flutti í Hvíta húsinu í dag. „Það mun taka tíma en áður langt um líður munið þið sjá eldsneytisverð lækka þar sem þið fyllið á tankinn.“
Indverjar losar fimm milljónir tunna
Bandaríkjastjórn hyggst byrja að losa olíutunnurnar á markað upp úr miðjum desember. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði dagana fyrir tilkynninguna sem bendir til þess að fjárfestar hafi gert ráð fyrir að stjórnvöld kæmu til í að grípa inn í markaðinn með þessum hætti. Eftir tilkynninguna hækkaði verð þó aftur um 2%.
AP-fréttaveitan hefur eftir sérfræðingi hjá greiningarfyrirtækinu Rystad Energy að fjárfestar hafi mögulega gert sér vonir um umfangsmeiri aðgerðir.
Í kjölfar tilkynningar Biden var greint frá því að indversk stjórnvöld ætluðu að losa fimm milljónir tunna á markað og bresk stjórnvöld 1,5 milljón. Japan og Suður-Kórea taka einnig þátt í samhæfðu losunaraðgerðunum sem bandarískir ráðamenn segja vera þær umfangsmestu til þessa.