Innlent

147 greindust með kórónu­veiruna innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Rúmlega 17 þúsund manns hafa nú greinst með kórónveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar 2020.
Rúmlega 17 þúsund manns hafa nú greinst með kórónveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar 2020. Vísir/Vilhelm

147 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjötíu af þeim 147 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 48 prósent. 77 voru utan sóttkvíar, eða 52 prósent.

Þetta kemur fram á síðunni Covid.is. 1.758 eru nú í einangrun vegna Covid-19, en voru 1.735 í gær. 2.290 eru nú í sóttkví, en voru 2.089 í gær. 179 eru nú í skimunarsóttkví.

Nítján eru nú inniliggjandi á sjúkrahúsum á landinu vegna Covid-19, en voru 24 í gær. Þá eru þrír á gjörgæslu vegna Covid-19 líkt og í gær. Á vef Landspítala segir að nítján sjúklingar liggi nú inni vegna COVID-19. Meðalaldur þeirra sé 56 ár. Þrír þeirra eru á gjörgæslu og þar af tveir í öndunarvél.

Þrjú smit kom upp á landamærunum í gær –allt virk smit í fyrri landamæraskimun.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 576,2, en var 584,7 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 27,0 en var 30,5 í gær.

Alls hafa 17.152 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 34 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 1.771 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá var 1.194 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 563 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×