Það var því ekki úr vegi að leiknum skyldi ljúka með markalausu jafntefli í fremur bragðdaufum leik.
Heimamenn voru líklegri og komst Leandro Trossard líklega næst því að skora þegar Belginn öflugi átti skot sem hafnaði í þverslánni.
Brighton ekki unnið neinn af síðustu átta leikjum sínum í deildinni en þrátt fyrir það situr liðið í áttunda sæti deildarinnar.
Leeds aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum og er aðeins þremur stigum frá fallsvæðinu þar sem liðið hefur tólf stig í 17.sæti deildarinnar.