Vinicius hetjan í dramatískum sigri Real Madrid Arnar Geir Halldórsson skrifar 28. nóvember 2021 22:00 Hinn 21 árs gamli Vinicius Jr. að springa út. vísir/Getty Það var boðið upp á dramatískar lokamínútur þegar Real Madrid fékk Sevilla í heimsókn í toppbaráttuslag í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn byrjaði fjörlega því Rafa Mir kom gestunum yfir strax á tólftu mínútu eftir undirbúning Marcos Acuna. Franski markahrókurinn Karim Benzema sá til þess að liðin færu með jafna stöðu í leikhléið þegar hann jafnaði metin á 32.mínútu. Brasilíumaðurinn Vinicius Junior hefur tekið sér stærra hlutverk en áður í sóknarleik Madridarliðsins á tímabilinu og hann tryggði Real Madrid dýrmætan sigur þegar hann skoraði sigurmark leiksins skömmu fyrir leikslok eða á 87.mínútu. Níunda mark Vinicius á tímabilinu og er hann næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar en markahæstur er liðsfélagi hans, Benzema, með ellefu mörk. Real Madrid nú með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar en Sevilla áfram í 4.sæti, með fimm stigum minna en toppliðið. Spænski boltinn
Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn