Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að væntanlega muni flestir landshlutar fá skammt af úrkomu áður en dagurinn sé á enda. Hiti um og yfir frostmarki.
Yfirlit: Vetrarfærð er víðast hvar á landinu og flughált er á nokkrum leiðum. Færðarkort Vegagerðarinnar má sjá hér: #færðin https://t.co/On4TGJQx5K
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) December 6, 2021
„Hitinn mjakast niðurávið og því verður úrkoman ýmist rigning eða snjókoma.
Á morgun verður lítil lægð á ferðinni úti fyrir norðurströndinni. Á norðanverðu landinu má þá búast við vestan kalda eða strekkingi og snjókomu með köflum. Sunnantil er útlit fyrir hægari suðlæga átt og stöku él. Frost 0 til 5 stig.
Um og uppúr miðri viku virðist eiga að vera tiltölulega rólegt veður áfram, það er allavega ekki stormur í kortunum eins og þau líta út núna þegar þetta er skrifað.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag: Vestlæg átt 5-13 m/s á norðanverðu landinu og snjókoma með köflum. Suðaustan 3-8 á Suður- og Vesturlandi og stöku él. Frost 0 til 6 stig.
Á miðvikudag: Suðlæg átt 3-10 og léttskýjað, en stöku él með vesturströndinni. Bætir heldur í vind um kvöldið og fer að snjóa austast á landinu. Frost 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á fimmtudag: Suðaustan 5-13 og rigning eða snjókoma með köflum, en úrkomulítið norðanlands. Hiti kringum frostmark.
Á föstudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og sums staðar dálítil él. Frost 0 til 6 stig.
Á laugardag: Hvöss austlæg átt með rigningu eða slyddu, talsverð úrkoma um landið suðaustanvert. Hiti 1 til 6 stig.
Á sunnudag: Breytileg átt, rigning eða slydda með köflum og svipaður hiti áfram.