Real Madrid jók forskot sitt á toppnum með sigri í borgarslagnum 12. desember 2021 21:58 Madrídingar fagna seinna marki sínu í kvöld. Mateo Villalba/Quality Sport Images/Getty Images Real Madrid er nú með átta stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 2-0 heimasigur gegn nágrönnum sínum í Atletico Madrid. Heimamenn tóku forystuna strax á 16. mínútu þegar Karim Benzema setti boltann á lofti í netið eftir fyrirgjöf frá Vinicius Junior. Þetta reyndist eina mark fyrri hálfleiksins og staðan því 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja. Vinicius Junior lagði einnig upp seinna mark Real Madrid, en í þetta skipti var það Marco Asensio sem setti boltann í netið á 57. mínútu. Gestirnir í Atletico Madrid fengu nokkur álitleg færi til að koma sér aftur inn í leikinn, en allt kom fyrir ekki og heimamenn fögnuðu góðum 2-0 sigri í borgarslagnum. Real Madrid er sem fyrr segir í efsta sæti deildarinnar með 42 stig eftir 17 leiki, átta stigum meira en Sveilla sem situr í öðru sæti. Atletico Madrid sitja hins vegar í því fjórða með 29 stig. Spænski boltinn
Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn