Þjóðin er sem sagt ekki alfarið tilbúin að sleppa hátíðarspennulestri sínum en fylgir þó Arnaldi vel inn af stað inn í heim bókmenntanna, hann leiðir enn listann yfir mest seldu bækur ársins. Sem er vitaskuld aðallistinn þegar upp er staðið og stefnir í æsispennandi keppni um toppsætið þar.
Glæpasögurnar hafa fagurbókmenntirnar undir
Nú þegar rétt rúm vika er til jóla er heldur betur farið að hitna í kolum hvað varðar bóksölu. Eins og Vísir sagði af fyrir viku stefndi í æsispennandi keppni milli þeirra Yrsu og Arnaldar eins og nú er komið á daginn. Fyrir lá að Arnaldur gæti verið að hætta krúnunni með því að bregða af vananum og senda frá sér sögulega skáldsögu en ekki krimma eins og oftast undanfarin tuttugu árin. Vogaður leikur og verður athyglisvert að sjá hvað verður.
Sé litið til skáldverka, en það er jafnan flokkur sem vekur athygli bókaþjóðarinnar, þá bítast Hallgrímur Helgason og Ragnar Jónasson um næstu tvö sæti listans þar. Ragnar hefur vinninginn vikuna en Hallgrímur hefur verið að sækja í sig veðrið og spennandi að sjá hvernig sá slagur endar. Stefán Máni er að gera gott mót í fimmta sætinu þar og í því 18. yfir sölu bóka allra flokka. Og spennusögurnar sigra fagurbókmenntirnar, ef svo má segja, eina ferðina enn en af þeim fimm skáldverkum sem sitja á topp 20 listanum eru þrjár spennusögur og tvö skáldverk.
Örn skilur Dag eftir í bensínbrælu og rykmekki
![](https://www.visir.is/i/E2F62ACF379E02829868570B19245BF2B310AE5B7FCC65BA46C7E9EF04D51275_390x0.jpg)
Á lista yfir 20 mest seldu bækurnar eru mörg kunnugleg nöfn svo sem Bjarni Fritzson sem má heldur betur vel við una í þriðja og sjöunda sætinu. Óttar Sveinsson hefur mörg undanfarin ár verið með bók á topp tíu lista yfir mest seldu bækurnar og barnabókahöfundar, sem á tímabili voru farnir að velja glæpasagnahöfundum undir uggum, eru í öruggu sætum með sínar bækur: Birgitta Haukdal, Gunnar Helgason og Ævar Þór Benediktsson.
Einn nýr titill stekkur inn í keppnina um svarta fola þessarar vertíðar – óvæntasta sölubókin. Það er Bílamenning Arnar Sigurðssonar, akstursgleði liðinnar aldar í máli og myndum. Hún situr þessa vikuna situr í 11. sæti aðallistans og hefur verið að fikra sig upp listann á liðnum vikum. Sem gætu, yfirfærð á komandi borgarstjórnarkosningar, talist slæm tíðindi fyrir Dag B. Eggertsson sem sendi frá sér gagnmerka bók um Reykjavík þar sem eitt stefið er borgarlínan og þétting byggðar. Hann hefur ekki átt sama láni að fagna með sína Nýju Reykjavík og bílamaðurinn Arnar meðal bókakaupenda. En hér er líklega verið að teygja sig fulllangt í túlkunum á bóksölulistunum sem afar gaman er að spá í.
Mest seldu bækurnar 7. - 13. des 2021
1. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir
2. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason
3. Orri óstöðvandi - Kapphaupið um silfur Egils - Bjarni Fritzson
4. Úti - Ragnar Jónasson
5. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason
6. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson
7. Salka: Tölvuheimurinn - Bjarni Fritzson
8. Guðni á ferð og flugi - Guðjón Ragnar Jónasson
9. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að eyðileggja - Gunnar Helgason
10. Lára bakar - Birgitta Haukdal
11. Bílamenning : Akstursgleði liðinnar aldar í máli og myndum - Örn Sigurðsson
12. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson
13. Rætur : Á æskuslóðum minninga og mótunar - Ólafur Ragnar Grímsson
14. Læknirinn í englaverksmiðjunn - Ásdís Halla Bragadóttir
15. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal
16. Fjárfestingar - Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir
17. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
18. Horfnar - Stefán Máni
19. Bakað með Evu Laufey - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
20. Heima hjá lækninum í eldhúsinu - Ragnar Freyr Ingvarsson
Mest seldu skáldverkin
1. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir
2. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason
3. Úti - Ragnar Jónasson
4. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason
5. Horfnar - Stefán Máni
6. Allir fuglar fljúga í ljósið - Auður Jónsdóttir
7. Merking - Fríða Ísberg
8. Náhvít jörð - Lilja Sigurðardóttir
9. Jól á eyjahótelinu - Jenny Colgan
10. Þú sérð mig ekki - Eva Björg Ægisdóttir
Mest seldu fræði- og handbækurnar
1. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson
2. Guðni á ferð og flugi - Guðjón Ragnar Jónasson
3. Bílamenning : Akstursgleði liðinnar aldar í máli og myndum - Örn Sigurðsson
4. Fjárfestingar - Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir
5. Bakað með Evu Laufey - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
6. Heima hjá lækninum í eldhúsinu - Ragnar Freyr Ingvarsson
7. Bærinn brennur - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
8. Hringfarinn - Helga Guðrún Johnson / Kristján Gíslason
9. Prjón er snilld - Sjöfn Kristjánsdóttir
10. Sprakkar - Elisa Reid
Mest seldu ævisögurnar
1. Rætur : Á æskuslóðum minninga og mótunar - Ólafur Ragnar Grímsson
2. Læknirinn í englaverksmiðjunn - Ásdís Halla Bragadóttir
3. 11.000 volt : Þroskasaga Guðmundar Felix - Erla Hlynsdóttir
4. Ilmreyr : Móðurminning - Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
5. Gunni Þórðar : Lífssaga - Ómar Valdimarsson
6. Minn hlátur er sorg : Ævisaga Ástu Sigurðardóttur - Friðrika Benónýsdóttir
7. Markús : Á flótta í 40 ár : Öðruvísi Íslandssaga - Jón Hjaltason
8. Völva Suðurnesja - Gunnar M. Magnúss
9. Sigurður Þórarinsson - mynd af manni I-II - Sigrún Helgadóttir
10. Hákarla-Jörundur : ævisaga Jörundar Jónssonar hákarlaformanns og útvegsbónda í Hrísey - Friðrik G. Olgeirsson
Mest seldu barna- og ungmennabækurnar
1. Orri óstöðvandi - Kapphaupið um silfur Egils - Bjarni Fritzson
2. Salka: Tölvuheimurinn - Bjarni Fritzson
3. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að eyðileggja - Gunnar Helgason
4. Lára bakar - Birgitta Haukdal
5. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson
6. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal
7. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
8. Verum ástfangin af lífinu - Þorgrímur Þráinsson
9. Jólasyrpa 2021 - Walt Disney
10. Verstu foreldrar í heimi - David Walliams
Mest seldu bækur ársins: 1. janúar - 13. desember 2021
1. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason
2. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir
3. Úti - Ragnar Jónasson
4. Lára bakar - Birgitta Haukdal
5. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson
6. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason
7. Orri óstöðvandi - Kapphaupið um silfur Egils - Bjarni Fritzson
8. Palli Playstation - Gunnar Helgason
9. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal
10. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að eyðileggja - Gunnar Helgason
11. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson
12. Undir 1000 kr. fyrir tvo - Áslaug Björg Harðardóttir
13. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
14. Bréfið - Kathryn Hughes
15. Guðni á ferð og flugi - Guðjón Ragnar Jónasson
16. Verstu foreldrar í heimi - David Walliams
17. Fjárfestingar - Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir
18. Rím og roms - Þórarinn Eldjárn og Sigrún Eldjárn
19. Læknirinn í englaverksmiðjunn - Ásdís Halla Bragadóttir
20. Rætur : Á æskuslóðum minninga og mótunar - Ólafur Ragnar Grímsson