Arsenal varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum enska deildarbikarsins þegar liðið vann öruggan 5-1 sigur gegn C-deildarliði Sunderland.
Eddie Nketiah kom Arsenal yfir á 17. mínútu áður en Nicolas Pepe tvöfaldaði forystu Lundúnaliðsins tíu mínútum síðar eftir stoðsendingu frá Cedric Soares.
Nathan Broadhead minnkaði muninn fyrir gestina eftir rúmlega hálftíma leik og staðan var því 2-1 þegar flautað var til hálfleiks.
Eddie Nketiah skoraði annað mark sitt, og þriðja mark heimamanna á 49. mínútu og hann fullkomnaði svo þrennu sína eftir tæplega klukkutíma leik.
Það var svo varamaðurinn Charlie Patino sem gulltryggði 5-1 sigur Arsenal í uppbótartíma, og liðið er nú komið í undanúrslit enska deildarbikarsins. Í undanúrslitum verður leikið heima og heiman á ný, en sú regla var felld niður í fyrra.