Yfirgnæfandi líkur á rauðum jólum suðvestantil Atli Ísleifsson skrifar 22. desember 2021 07:10 Nánast engin úrkoma er í spám fyrir suðvestur- og vesturland næstu daga. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðaustlægri eða breytilegri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, og dálitlum éljum við norður- og austurströndina í dag. Annars staðar verður víða léttskýjað og frost núll til tíu stig þar sem kaldast verður í innsveitum á Norðausturlandi, en frostlaust syðst.
Spáð er svipuðu veðri á morgun. Nánast engin úrkoma er í spám fyrir suðvestur- og vesturland næstu daga og eru því líkurnar yfirgnæfandi að jólin verði rauð á þeim slóðum. Annars staðar verður einhver minniháttar éljagangur en hvort hann dugi til að hylja landið hvítu teppi er alls óvíst. „Reglan um hvort jól séu hvít eða rauð fyrir Reykjavík er gerð kl. 9 á jóladagsmorgun og er þá metið hvort jörð sé auð, flekkótt eða hvít,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag (Þorláksmessa): Austlæg átt, 5-10 m/s, en 10-15 syðst. Dálítil él við SA og A-ströndina, en annars bjart með köflum. Víða vægt frost. Á föstudag (aðfangadagur jóla): Austanátt, allhvöss og dálítil él syðst, en annars mun hægari breytileg átt, bjart með köflum og herðir frost. Á laugardag (jóladagur) og sunnudag (annar í jólum): Norðaustlæg eða breytileg átt og dálítil él, en úrkomulaust að kalla SV-lands og fremur kalt í veðri. Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt, úrkomulítið og talsvert frost, en mildara vestast.
Veður Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Sjá meira