Taka þær sæti í framkvæmdastjórn félagsins og leiða tvö svið sem eru hluti af nýju skipulagi sem kynnt var í lok síðasta árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group en þær munu hefja störf á fyrsta ársfjórðungi.
Snýr aftur til Icelandair
Sylvía Kristín hefur starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo síðastliðið ár. Sylvía starfaði hjá Icelandair á árunum 2018 til 2021, fyrst sem forstöðumaður stuðningsdeildar flugrekstrar og síðar sem forstöðumaður leiðakerfis félagsins.
Hún starfaði hjá Landsvirkjun frá árinu 2015 þar sem hún var meðal annars deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði. Áður starfaði hún hjá höfuðstöðvum Amazon í Evrópu um fimm ára skeið, fyrst við rekstur og áætlanagerð og síðan við Kindle-deild fyrirtækisins þar sem hún sá um viðskiptagreind, markaðsmál og vöruþróun fyrir vefbækur.
Sylvía er með M.Sc. próf í Operational research frá London School of Economics og B.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Sylvía er jafnframt stjórnarformaður Íslandssjóða.
Var hjá Alvotech og Arion banka
Fram kemur í tilkynningu að Rakel hafi starfað sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Alvotech síðan seinni hluta árs 2020 og áður verið yfirmaður upplýsingatæknisviðs og alþjóðlegrar verkefnastofu Össurar (CIO and VP of Global Program Office).
Fyrir þann tíma, starfaði hún í um 14 ár hjá Arion banka, þar sem hún var meðal annars framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssvið frá 2011 og framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs frá 2016 þar sem hún leiddi mótun og framkvæmd stafrænnar stefnu bankans. Rakel er með MBA gráðu frá Duke University í Bandaríkjunum og B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir það það mikinn styrk fyrir félagið að fá Sylvíu og Rakel til liðs við stjórnendahópinn.
„Sylvía þekkir Icelandair og flugrekstrarumhverfið mjög vel eftir fyrri störf hjá okkur og mun leiða þjónustu- og markaðsmál þar sem höfuðáhersla er lögð á upplifun viðskiptavina og að styrkja Icelandair vörumerkið enn frekar.
Rakel kemur með mikla reynslu inn í félagið á sviði stafrænnar þróunar og upplýsingatækni og mun meðal annars leiða stafræna vegferð félagsins með það að markmiði að stuðla að einföldu og ánægjulegu ferðalagi fyrir viðskiptavini okkar og leggja grunninn að bættri nýtingu gagna við ákvarðanatöku,“ segir Bogi Nils í tilkynningu.