Kristianstad samdi við íslenskan táning Sindri Sverrisson skrifar 12. janúar 2022 15:50 Emelía Óskarsdóttir og Lilja Lív Margrétardóttir eru báðar Gróttustelpur sem hafa verið að spila með yngri landsliðum Íslands. Instagram/@Grottaknattspyrna Hin 15 ára gamla Emelía Óskarsdóttir, sem uppalin er hjá Gróttu, er gengin í raðir sænska úrvalsdeildarfélagsins Kristianstad.
Umboðsmaðurinn Magnús Agnar Magnússon greinir frá þessu á Twitter í dag en í byrjun vikunnar bárust fregnir af því að Kristianstad vildi semja við þessa efnilegu knattspyrnukonu. pic.twitter.com/G5TKiRnU0X— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) January 12, 2022 Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Kristianstad eins og mörg undanfarin ár en hún stýrði liðinu til sætis í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á síðustu leiktíð, rétt eins og ári áður. Í stjórnartíð Elísabetar hefur Kristianstad alltaf verið mikið Íslendingalið og á síðustu leiktíð léku þær Sveindís Jane Jónsdóttir og Sif Atladóttir með liðinu en þær eru nú horfnar á brott. Hin 18 ára gamla Amanda Andradóttir er hins vegar komin frá norska félaginu Vålerenga. Emelía hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar spilað meistaraflokksleiki með Gróttu, í næstefstu deild. Hún á að baki fimm leiki fyrir yngri landslið Íslands. Emelía er fædd í mars 2006 en hún er dóttir Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks og systir Orra Steins sem bankar á dyrnar hjá meistaraflokki FC Kaupmannahafnar í Danmörku.
Sænski boltinn Mest lesið Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Gary sem stal jólunum Enski boltinn Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Enski boltinn Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Enski boltinn Ættingi Endricks skotinn til bana Fótbolti Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Enski boltinn Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Enski boltinn Spilaði reglulega við afa Littlers en mætir nú stráknum á HM Sport Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Enski boltinn Dagskráin í dag: Pílan hefst aftur eftir hlé Sport Fleiri fréttir City ætlar að kaupa í janúar Gary sem stal jólunum Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Ættingi Endricks skotinn til bana Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Slæmur skellur fyrir gestina á St. James Park Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Sáu ekki til sólar en unnu samt Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Látnir gista líka á æfingasvæðinu Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Sjá meira