Leiðindaveður víða um land í nótt og á morgun Árni Sæberg skrifar 21. janúar 2022 22:54 Þorrinn hefst af krafti. Vísir/Vilhelm Appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Norð-Vesturhluta landsins sem gilda til klukkan 18 á morgun. Þá eru gular viðvaranir í gildi víða um land.
Veður verður ekki eins og helst yrði á kosið á landinu í nótt og meirihluta morgundags. „Sérstaklega á Norð-Vesturhluta landsins verður mjög slæmt veður og svona leiðindaveður víða annars staðar, þó það verði ekki jafnvont,“ segir vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands í samtali við Vísi. Á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra er suðvestan stormi eða roki og snjókomu eða élagangi spáð. Vindhraði verður á bilinu 15 til 28 metrar á sekúndu og allt að 40 metrar í hviðum. „Það er appelsínugult af því það fylgir þessu fyrst snjókoma eða slydda og síðan élagangur. Élagangur getur spillt færð,“ segir veðurfræðingur. Á Faxaflóa, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og Miðhálendi verður vindhraði svipaður en þó án úrkomu. Því eru gular viðvaranir í gildi þar. Þegar hefur tekið að hvessa víða en veður ætti að vera orðið með kyrrum kjörum fyrir kvöldmatarleyti annað kvöld. „Það fer að draga hægt og rólega úr þessu um hádegi á morgun og um sex er þetta orðið mun skárra,“ segir veðurfræðingur. Ljóst er að ekkert ferðaveður verður á morgun.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira