Veður

Víða tals­vert frost í nótt en dregur úr því með morgninum

Atli Ísleifsson skrifar
Á morgun verður veðrið svipað og í dag en það dregur smám saman úr vindi.
Á morgun verður veðrið svipað og í dag en það dregur smám saman úr vindi. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir norðan og norðvestan kalda eða strekkingi í dag og snjókomu eða él, en úrkomulitlu veðri sunnanlands. Það hefur víða verið talsvert frost í nótt en það dregur úr því með morgninum og verður frost á bilinu eitt til níu stig eftir hádegi.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það gangi í norðvestan tíu til átján metra á sekúndu síðdegis, en það verður hvassara í vindstrengjum suðaustantil á landinu í nótt.

Á morgun verður veðrið svipað en það dregur smám saman úr vindi.

Spákortið fyrir klukkan 16 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Norðan og norðvestan 10-18 m/s, en lægir á V-verðu landinu með morgninum. Víða él, en þurrt að kalla sunnan heiða. Frost 1 til 8 stig. Breytileg átt 5-13 og úrkomuminna um kvöldið.

Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt 10-18 og snjókoma með köflum um morguninn, en hægari og úrkomulítið á A-landi. Lægir síðan og dregur úr ofankomu, en áfram allhvöss norðaustanátt á Vestfjörðum. Frost 2 til 10 stig.

Á sunnudag: Norðan og norðaustan 5-13 og él, en yfirleitt þurrt S-lands. Hiti breytist lítið. Vaxandi austanátt um kvöldið.

Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt, víða stormur eða rok og snjókoma eða slydda. Hlýnar heldur.

Á þriðjudag og miðvikudag: Breytileg átt og snjókoma með köflum, kalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×