Allt að tuttugu stiga frost inn til landsins Atli Ísleifsson skrifar 10. febrúar 2022 07:09 Reikna má að það dragi úr frosti þegar líður á daginn. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir suðvestlægum áttum í dag með stöku éljum vestanlands en bjart að mestu fyrir austan.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það sé talsvert frost á landinu núna í morgunsárið, á bilinu tvö til fimmtán stig við ströndina en allt að tuttugu stiga frost inn til landsins. Það dragi úr frosti þegar líður á daginn og í kringum eins til átta stiga frost síðdegis. Eins og sjá má fór frost í rúmlega tuttugu stig á Þingvöllum klukkan fimm í morgun.Veðurstofan „Minnkandi vestanátt í nótt, og aftur talsvert frost á landinu. Hæg breytileg átt í fyrramálið og dálítl él á við og dreif. Vaxandi austanátt síðdegis á morgun, víða 5-13 undir kvöld og léttskýjað. Frost 2 til 12 stig. Útlit fyrir rólegt veður um helgina, þurrt að kalla og áfram kalt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Breytileg átt 3-8 m/s, en austan 10-15 syðst á landinu undir kvöld. Víða bjart með köflum, en dálítil él á stöku stað. Frost 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á laugardag: Norðaustan 5-10, en 10-15 með suðausturströndinni. Víða þurrt og bjart veður, en skýjað og lítilsháttar él austanlands. Frost 2 til 12 stig. Á sunnudag: Breytileg átt 3-8. Skýjað með köflum á landinu og stöku él sunnantil. Áfram kalt í veðri. Á mánudag: Gengur í suðaustan 8-13 á sunnan- og vestantil og snjókoma með köflum. Hægari vindur og bjartviðri norðan- austanlands. Hiti frá frostmarki við suðurströndina, niður í 10 stiga frost í innsveitum fyrir norðan. Á þriðjudag: Ákveðin austan- og suðaustanátt. Snjókoma eða slydda með köflum og hiti kringum frostmark en rofar til síðdegis vestantil. Á miðvikudag: Útlit fyrir breytilega átt með slyddu eða snjókomu og hiti um eða undir frostmarki.
Veður Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Sjá meira