Margréti finnst lítið mál að vera með mörg járn í eldinum og segist hafa lært mikið af Hillary Clinton fyrrum forsetafrú og forsetaframbjóðanda.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Yfirleitt um klukkan fimm þegar sólin rís. Mér finnst dásamlegt að tengja þannig við upphaf dagsins og ég er frjó í hugsun svona snemma. Svo elska ég friðinn fyrst á morgnana áður en allt fer af stað og í gang.
Ég les oft eitthvað uppbyggjandi sem veitir mér innblástur.
Lífið er jú krefjandi flesta daga og við þurfum að vera sterk og í jafnvægi til þess að takast á við verkefnin sem okkur eru færð.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég fer fram í eldhús og fæ mér grænt te og prótein bar og byrja að lesa tölvupósta sem yfirleitt skipta tugum og fer að svara þeim einum af öðrum. Þegar ég er svo „vöknuð“ fer ég í sturtu og beint út að labba.“
Hvaða stund í vikunni er í uppáhaldi hjá þér og fær þig alltaf til að brosa?
„Uppáhalds stundirnar mínar eru kvöldverðir með fjölskyldu minni og bara yfirleitt öll samvera með þeim.
Covid sameinaði okkur og hefur gefið okkur einhverjar dýrmætustu stundir og minningar sem við höfum upplifað saman í seinni tíð.
Það er merkilegt hvað litlu hlutirnir í lífi manns veita manni mikla gleði. Það er dýrmætt að vita hvað veitir manni hamingju.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Ég rek fyrirtækið okkar alla daga og í því eru margar deildir. Ég er að vinna að nokkrum sjónvarps- og kvikmyndaverkefnum þessa dagana og það er eiginlega brjálað að gera hjá mér. Velgengni House of Cardin, heimildarmyndin um Pierre Cardin hefur fært fjölmörg spennandi tækifæri og verkefni upp í hendurnar á mér. Ég er í miklu samstarfi við Frakka og Ítali í dag.
Svo er Othar Raven Pictures & TV fyrirtækið okkar að bæta við bóka framleiðslu í ár og við erum nú þegar með tvær bækur, sem eru mjög ólíkar en mjög spennandi, í vinnslu.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég virðist geta verið með mörg verkefni á teinunum í einu og er kannski vön að fylgja hlutum vel eftir en lykillinn að allri velgengni liggur í eftirfylgninni.
Svo reyni ég að nota orkuna í aðalatriðin og lausnir. Ég held að það eigi við um flest allt.
Ég er löngu laus við frestunaráráttu og geng í erfið og auðveld verkefni sitt á hvað og svo er ég alltaf með gott aðstoðarfólk með mér.
Ég lærði ótrúlega mikið á því að fylgjast með Hillary Clinton vinna.
Hún fókuserar alltaf á heildarmyndina og svo: Hvað er næst? Hvað er næst?
Þetta gerir fólki kleift að fara í gegnum erfið mál og verkefni eitt af öðru yfir daginn en passa sig alltaf að hafa gaman með í bland og eitthvað skemmtilegt að hlakka til.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Oftast á milli klukkan ellefu og miðnætti og ég sofna eins og skot!“