Neytendur

Að­skota­hlutur fannst í kanilsykurspoka

Freyja Þórisdóttir skrifar
Lífland ehf. hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla Kanilsnúðaköku frá Kornax.
Lífland ehf. hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla Kanilsnúðaköku frá Kornax. Getty/Aðsend

Lífland ehf. hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla Kanilsnúðaköku frá Kornax. Ástæða innköllunar er að aðskotahlutur, nánar tiltekið plaststykki, fannst í kanilsykurspoka sem fylgir með Kanilsnúðakökunni.

Í tilkynningu er varðar innköllunina kemur fram að neytendur sem eigi umrædda vöru séu beðnir um að neyta hennar ekki. Frekar eigi að farga henni en einnig sé hægt að fá nýja vöru í verslun Líflands á Korputorgi í Reykjavík.


Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:

Kornax

Vöruheiti:

Kanilsnúðakaka frá Kornax

Nettómagn:

475g

Strikamerki:

5 690453 977919

Best fyrir dagsetning:

18.08.2026 & 10. 11. 2026 

Lotunúmer:

15012534403 & 15012546102

Framleiðandi:

Valsemøllen A/S, Esbjerg fyrir Lífland ehf. á Íslandi

Dreifing:

Krónan, Bónus, Hagkaup, Stórkaup, Fjarðarkaup, IKEA, Kaupfélag vestur Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga, Hlíðarkaup, Melabúðin, Verslun Einars Ólafssonar, Hraðbúðin Hellissandi, Víkurval og Fjölval Smáralind.


Þá kemur ennfremur fram að nánari upplýsingar um innköllunina veiti Lífland í síma 540-1100 eða netfang lifland@lifland.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×