Hópur eldri borgara rekinn uppúr heitum potti Jakob Bjarnar skrifar 23. febrúar 2022 15:14 Þorgrímur laumaðist í heita pottinn sem var brot á fyrirmælum, en Þorgrímur flokkar sem borgaralega óhlýðni og á eftir fylgdu aðrir pottverjar, sem komnir voru við aldur. vísir/vilhelm Þorgrímur Þráinsson rithöfundur, sem hefur lengi hefur verið einhvers konar táknmynd þess að vera góður og gegn löghlýðinn borgari, játaði óvænt á sig það sem hann flokkar sem borgaralega óhlýðni.
Þorgrímur gerði sér lítið fyrir og stalst í heitan pott Vesturbæjarlaugar sem þá var og er lokaður. Áður en hann vissi af fylgdu fleiri sundlaugagestir, sem flestir voru við aldur, í kjölfarið. Sjálfur slapp hann við að vera rekinn uppúr pottinum af sundlaugastarfsmanni, einfaldlega vegna þess að hann var þá farinn í gufuna. Forstöðukona Vesturbæjarlaugar segir að sjá fari fyrir endann á vandamálinu með heita pottinn. Heldri borgarar vildu almennilegan hita í kroppinn Þorgrímur greindi frá hálfgerðu neyðarástandi sem myndaðist í Sundlaug Vesturbæjar um síðustu helgi á sinni Facebook-síðu. Þorgrímur, sem er fastagestur laugarinnar, var þar staddur í moðvolgum potti ásamt heldri borgurum. Sér til mikillar mæðu var heitasti potturinn, sem þeir sem komnir eru til ára sinna og eru með elt leður, vilja helst mara í, lokaður. Tveimur appelsínugulum keilum hafði verið stillt upp til marks um það og það ekki í fyrsta skipti í vikunni sem potturinn var lokaður. Þorgrímur mundar stílvopn sitt af nokkurri fimi þegar hann lýsir aðstæðum; „Sumir töldu að um vörusvik væri að ræða, jafnvel hryðjuverk.“ Þorgrímur lýsir því þá í bráðskemmtilegri frásögn að ekkert þeirra sem hafi verið í hinum moðvolga heita potti hafi haft hugrekki til að taka af skarið og lauma sér ofan í hinn lokaða pott til að athuga hitastigið. „Af því það eru eftirlitsmyndavélar út um allt. Þegar sundlaugarvörður stakk glasi ofan í heitasta vatnið fylltumst við von um að hann myndi opna augnabliki síðar. En því miður kom hann ekki til baka.“ Slapp sjálfur við að vera rekinn uppúr Eftir heitar, eða öllu heldur volgar, umræður þeirra heldri borgara sem í pottinum voru lét Þorgrímur til skara skríða. Fór í pottinn og kom sér þar makindalega fyrir í notalegu heitu vatninu. Í kjölfarið fylgdu svo nokkrir sextíu plús plús, eins og Þorgrímur orðar það. Eftir því sem árin líða og húðin herðist, þeim mun betur kann fólk að meta það að hitinn sé almennilegur í heitum pottum. Og það leiddi svo til borgaralegrar óhlýðni hóps heldri borgara í Vesturbæjarlauginni. (Myndin tengist ekki umfjölluninni beint né er hún tekin í Vesturbæjarlaug.)getty/lisa stokes Þegar Þorgrímur var orðinn vel heitur fór hann yfir í gufuna og skildi restina af hinum brotlegu eftir í sæluvímu. Fljótlega mætti þá starfsmaður laugarinnar og vísaði þeim uppúr. Þrátt fyrir þessa borgaralegu óhlýðni er Þorgrímur heiðarlegur umfram allt og gaf sig fram í afgreiðslunni á leiðinni út og játaði brot sitt. „Gaurinn í afgreiðslunni var ekkert sérstaklega sáttur, enda var það hann sem rak fastagestina upp úr pottinum, og hann bætti við að eitthvert ójafnvægi væri á klórnum í pottinum. Ég lofaði að gera þetta aldrei aftur og hann þakkaði fyrir að ég skyldi viðurkenna „mistök“ mín. En ég er ekki frá því að þetta hafi verið ein skemmtilegasta sundferð ársins því ekki hafa covid-fjöldatakmarkanir í sundlaugum kætt okkar geð síðustu mánuði, afsakið, ár!“ Óregla á klórmagni í pottinum Þorgrímur segir sannleikann sagna bestan og menn verði að hafa hugrekki til að „taka samtalið. Eins og sumir vita hefur það ekki verið raunin í ákveðnum málum síðustu daga og eitt og annað ratað í fjölmiðla, að óþörfu! En ég læt engan vita af því að núna ligg ég upp uppi rúmi og skinnið er að leka af mér. Hvort það er klórinn eða klórleysið, veit ég ekki.“ Vísir kannaði hvernig í málinu liggur og ræddi við sundlaugavörðinn sem þurfti að reka hópinn úr pottinum. Hann staðfesti það að ójafnvægi hafi verið á klórnum í pottinum. Þessi heiðursmaður lætur fara vel um sig í sjóðandi heitum potti og hefur engar áhyggjur af því hvort of eða van er af klór í vatninu. (Myndin tengist umfjölluninni ekki beint og er ekki frá Vesturbæjarlaug.)Getty Og Vala Bjarney Gunnarsdóttir, forstöðukona Vesturbæjarlaugar bættir því við að meginástæðan fyrir því að potturinn sé lokaður er sú að verið væri að laga lögn í kjallaranum. Sem svo tengdist umræddum potti. Hún gerir sér vonir um að því verki ljúki í dag eða á morgun og þá verður hægt að opna þennan vinsæla pott. „Það er agalegt að komast ekki í heitasta pottinn. Hinir eru mjög svipaðir, þessi er sérstakur,“ segir Vala og ekki á henni að heyra að hún hugsi Þorgrími þegjandi þörfina. Frekar að hún teldi brotið léttvægt, hún hafi á því fullan skilning án þess þó að gera lítið úr því að hlýða beri sundlaugavörðum í hvívetna. Vala segir að þau hafi einnig verið að eiga við dintótt klórinntak. Klórstigið megi hvorki vera of hátt né of lágt, samkvæmt reglugerð. „Núna er verið að laga þetta,“ segir Vala og vonast til þess að klórmagn í pottinum verði stöðugt.
Sundlaugar Eldri borgarar Reykjavík Tengdar fréttir Það er svo margt galið á Íslandi Þorgrímur Þráinsson er einn vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar. Honum blöskrar aðgerðarleysið gagnvart þeim vanda sem blasir við ólæsi ungmenna og telur kerfið drepa allt í dróma. Í þessu höfundatali er einnig tekið á hinni heitu kartöflu sem eru listamannalaunin. 25. nóvember 2021 07:01 Mest lesið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Bíó og sjónvarp Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Lífið Stiklusúpa: Allt það helsta sem kynnt var á Game awards Leikjavísir Fleiri fréttir Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Sjá meira
Það er svo margt galið á Íslandi Þorgrímur Þráinsson er einn vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar. Honum blöskrar aðgerðarleysið gagnvart þeim vanda sem blasir við ólæsi ungmenna og telur kerfið drepa allt í dróma. Í þessu höfundatali er einnig tekið á hinni heitu kartöflu sem eru listamannalaunin. 25. nóvember 2021 07:01