Íslenskur myndlistarmaður með sýningu í Amsterdam: „Ljóðlistin seytlar inn í myndlistina“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 25. febrúar 2022 19:31 Myndlistarmaðurinn Kristbergur Ó. Pétursson á sýningu sinni Paintings and Poems í Amsterdam. Aðsend Íslenski myndlistarmaðurinn Kristbergur Ó. Pétursson opnaði einkasýninguna Paintings and poems í Amsterdam fyrir nokkrum vikum síðan í Wg Kunst salnum.
Sýningin stendur til 27. febrúar, næstkomandi sunnudags. Blaðamaður hafði samband við Kristberg um þetta spennandi verkefni. View this post on Instagram A post shared by Wg Kunst (@wgkunst) Tæplega þrjátíu ára ferill Ferill Kristbergs spannar bráðum þrjátíu ár en hann lauk listnámi árið 1988. Myndheimur verka hans á sér þróunarsögu sem má rekja til grafíkverka og teikninga í Amsterdam, þar sem Kristbergur lærði. Síðar beindist áhugi hans meira að málverki og hefur hann hvað mest unnið í olíumálverki, akríl myndum og síðastliðinn áratug einnig tekið til við vatnslitamálun. View this post on Instagram A post shared by Kristbergur Ó. Pétursson (@kristbergur_odinn_petursson) Draumur sem rættist Aðspurður segir Kristbergur að þetta tiltekna verkefni sé búið að vera í bígerð í rúm tvö ár. Hann var svo heppinn að finna þennan sýningarsal úti en hugmyndin að sýningu í Amsterdam á sér langan aðdraganda og má rekja aftur til níunda áratugarins. „Ég var úti í myndlistarnámi í Amsterdam á árunum 1985-1988. Eftir að ég kom heim úr þessu námi hefur alltaf verið draumur að fara út með þessa sýningu.“ Verkin hönnuð fyrir rýmið Listaverk sýningarinnar eru öll ný verk sem Kristbergur vann sérstaklega fyrir þennan tiltekna sal og þessa sýningu. Hann fékk nákvæma teikningu af salnum frá aðilunum sem reka hann og því gat hann hannað sýninguna fyrir rýmið, verk fyrir verk. Kristmundur segir að það hafi heilmikið að segja um heildar útlitið á sýningunni. View this post on Instagram A post shared by Kristbergur Ó. Pétursson (@kristbergur_odinn_petursson) Ljóðlistin og myndlistin sameinast Það er þó ekki bara myndlistin sem kemur fram á sýningunni, eins og titillinn Paintings and Poems gefur til kynna. „Innblásturinn fyrir þessi tilteknu verk kemur úr dálítið óvæntri átt. Ég tók upp á því fyrir tíu árum síðan að byrja að skrifa ljóð,“ segir Kristbergur en í upphafi vissi hann ekki nákvæmlega hvað hann vildi gera við þessi ljóð. Smám saman hafi ljóðin svo farið að seytla yfir í myndirnar. „Megnið af þessari sýningu eru beinvísanir í þessi tilteknu ljóð sem ég hef skrifað. Ljóðin koma bara til mín einhvern veginn. Ég get ekki kallað á þau, þau bara koma.“ Ljóð Kristbergs fjalla um mannlega tilvist og náttúru og búa yfir húmor, ásamt því að vera stundum drungaleg. Í listsköpun sinni deilir hann persónulegri reynslu í bland við þverstæðukenndan raunveruleika en segja má að listaverkin á þessari sýningu mætist akkúrat á milli ánægjulegs tímaleysis náttúrunnar og blákalds raunveruleika þess sem er hér og nú. View this post on Instagram A post shared by Kristbergur Ó. Pétursson (@kristbergur_odinn_petursson) Olíumálverk Kristbergs búa yfir lögum af mörgum jarðlitum. Hann hefur átt í tilraunastarfsemi með ljóðin sín þar sem hann felur þau undir málningarlagi á striganum. Þannig eru orðin sem slík gerð óhlutbundin inn í línum og lögum sem mynda listræna heild ólíkra listmiðla. Nánari upplýsingar um sýninguna má finna hér.
Myndlist Menning Tengdar fréttir Formin dansa á striganum þar sem andstæður mætast Myndlistarmaðurinn Þorsteinn Helgason opnar sýninguna Dans litanna á morgun, laugardaginn 26. febrúar, klukkan 14:00 í Gallerí Fold. 25. febrúar 2022 14:01 Möguleikar ljóðsins eru endalausir Stuttungur er nýstárlegri ljóðahátið sem haldin verður í annað skiptið á morgun, fimmtudag og fagnar framúrstefnulegri nálgun á tungumálið. Hátíðin leggur áherslu á að skapa framsækinn vettvang fyrir tilraunakennda ljóðastarfsemi af ýmsu tagi. Ásta Fanney Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri hátíðarinnar og bíður alla velkomna. 23. febrúar 2022 16:57 Magnað að geta verið eitt í listinni og svo annað í lífinu Myndlistakonan Ásdís Sif Gunnarsdóttir er hvað þekktust fyrir gjörningalist og video verk en hún hefur náð miklum árangri í listheiminum á síðustu áratugum og unnið að fjöldanum öllum af verkum og sýningum. Ásdís stendur nú fyrir einkasýningunni Stefnumót við sjálfið á Nýlistasafninu og er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna neðar í pistlinum. 15. febrúar 2022 10:15 „Efnið er nefnilega lifandi“ Listakonan Þóra Sigurðardóttir opnar sýninguna EFNI & RÝMI klukkan 14:00 í dag í sal félagsins íslensk grafík, Hafnarhúsinu, og stendur sýningin til 6. mars næstkomandi. 12. febrúar 2022 07:31 Mest lesið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Menning Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Króli trúlofaður Lífið Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið Fleiri fréttir Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Áreittar í sundi fyrir það að vera hinsegin Arnaldur tók sér frí frá glæpum en ekki toppnum Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Sjá meira
Formin dansa á striganum þar sem andstæður mætast Myndlistarmaðurinn Þorsteinn Helgason opnar sýninguna Dans litanna á morgun, laugardaginn 26. febrúar, klukkan 14:00 í Gallerí Fold. 25. febrúar 2022 14:01
Möguleikar ljóðsins eru endalausir Stuttungur er nýstárlegri ljóðahátið sem haldin verður í annað skiptið á morgun, fimmtudag og fagnar framúrstefnulegri nálgun á tungumálið. Hátíðin leggur áherslu á að skapa framsækinn vettvang fyrir tilraunakennda ljóðastarfsemi af ýmsu tagi. Ásta Fanney Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri hátíðarinnar og bíður alla velkomna. 23. febrúar 2022 16:57
Magnað að geta verið eitt í listinni og svo annað í lífinu Myndlistakonan Ásdís Sif Gunnarsdóttir er hvað þekktust fyrir gjörningalist og video verk en hún hefur náð miklum árangri í listheiminum á síðustu áratugum og unnið að fjöldanum öllum af verkum og sýningum. Ásdís stendur nú fyrir einkasýningunni Stefnumót við sjálfið á Nýlistasafninu og er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna neðar í pistlinum. 15. febrúar 2022 10:15
„Efnið er nefnilega lifandi“ Listakonan Þóra Sigurðardóttir opnar sýninguna EFNI & RÝMI klukkan 14:00 í dag í sal félagsins íslensk grafík, Hafnarhúsinu, og stendur sýningin til 6. mars næstkomandi. 12. febrúar 2022 07:31