Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að rigning eða slydda verði fyrir austan, en annars dálítil él.
„Dregur smám saman úr vindi og úrkomu í dag, en hvessir fyrir austan í kvöld þegar lægðin fjarlægist landið.
Norðvestan hvassviðri eða stormur um landið austanvert í nótt og í fyrramálið, en mun hægari vindur um landið vestanvert. Víða él, einkum norðantil á landinu.
Lægir og styttir upp þegar líður á morgundaginn, en strax annað kvöld fer vindur að vaxa úr austri þegar næsta kerfi nálgast landið úr suðvestri.“
Gular viðvaranir:
- Faxaflói, norðaustan stormur og hríð. 28. febrúar kl 7-11.
- Breiðafjörður, norðaustan hvassviðri eða stormur og él, 28. febrúar 5-14.
- Vestfirðir, norðaustan hvassviðri eða stormur og hríð, 28. febrúar 6-16.
- Strandir og Norðurland vestra, norðaustan hvassviðri eða stormur og hríð, 28. febrúar 5-14.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag: Minnkandi norðvestanátt og éljagangur um landið norðanvert, en annars úrkomuminna. Hæglætisveður síðdegis og él á stöku stað, en vaxandi suðaustanátt suðvestantil um kvöldið. Kólnar í veðri, frost allt að 10 stig norðaustantil en frostlaust við suðurströndina.
Á miðvikudag: Gengur í suðaustan 13-20 m/s með rigningu eða slyddu en heldur hægari og þurrt norðanlands. Dregur úr vindi seinnipartinn. Hlýnandi veður, hiti 0 til 6 stig síðdegis.
Á fimmtudag og föstudag: Suðvestan 5-13 m/s og él en lengst af úrkomulítið norðan og austanlands. Hiti kringum frostmark en frost 0 til 6 stig á föstudag.
Á laugardag: Vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigingu en suðvestanátt og snjókomu eða él og kólnandi veður um kvöldið. Yfirleitt þurrt norðaustantil.
Á sunnudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt og stöku él sunnan- og vestanlands, annars þurrt og bjart. Vægt frost víða.